Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Side 41
Margrét Einarsdóttir, Kolbeinn Hólmar Stefánsson og Kristín Heba Gísladóttir
41 ..
atvinnulaus, er innflytjandi, er með litla menntun, hefur verið á hlutabótaleið, á ekki maka, er með
börn undir 18 ára aldri á framfæri sínu, er undir þrítugu og/eða er kona. Þá eykur slæm líkamleg
heilsa einnig líkur á þunglyndiseinkennum. Taflan sýnir jafnframt að styrkur sambandsins á milli
þunglyndiseinkenna og skýringabreytanna er mismikill. Af félags- efnahagslegu breytunum mælist
hann mestur við efnislegan skort, heldur lægri við það að ná ekki endum saman en lítill við aðrar
félagslegar og efnahagslegar breytur. Sambandið á milli þunglyndiseinkenna og líkamlegrar heilsu
mælist einnig nokkuð öflugt og raunar lítið eitt öflugra en við efnislegan skort.
Tafla III. Fjölbreytugreining á áhættuþáttum þunglyndiseinkenna
B (SE B) OR (95% CI) p
Efnislegur skortur (1)*
(kvarði frá 0 til 9)
0,36
(0,03)
1,43
(1,34 - 1,52)
0,00
Enginn efnislegur skortur 1,00
Skortir alla níu þættina 12,85
Að ná endum saman (4)*
(kvarði frá 1 til 6)
0,29
(0,03)
1,34
(1,25 - 1,43)
0,00
Mjög auðvelt 1,00
Mjög erfitt 6,70
Atvinnustig (7)* 1,46 0,00
Í vinnu 1,00
Atvinnualus 0,38 (0,10) 1,46 (1,21 - 1,76)
Innflytjendastaða (5)* 1,67 0,00
Innfædd(ur) 1,00
Innflytjandi 0,51 (0,08) 1,67 (1,42 - 1,96)
Aldur (3)* 0,34 0,00
Yngri en 30 ára 2,93
30 ára eða eldri -1,08 (0,08) 1,00 (0,29 - 0,40)
Hjúskaparstaða (6)* 0,00
Í sambúð 1,00
Einhleypir 0,35 (0,08) 1,42 (1,22 - 1,66) 0,00
Fráskildir/ekklar, ekkjur 0,55 (0,14) 1,73 (1,31 - 2,28) 0,00
Börn undir 18 (8)*
(kvarði frá 0 til 4)
0,08
(0,03)
1,08
(1,01 - 1,15)
0,02
Ekkert barn 1,00
Fjögur eða fleiri börn 4,31
Líkamleg heilsa (2)*
(kvarði frá 1 til 5)
0,95
(0,04)
2,58
(2,39 - 2,79)
0,00
Mjög góð 1,00
Mjög slæm 10,31
Fasti -4,39 (0,16) 0,01 0,00
-2 log Likelihood 6155,34
Negelkerke R2 0,35
Líkan: χ2 (9) = 1955,82, p = 0,00
Tafla III sýnir niðurstöður aðhvarfsgreiningar á þeim áhættuþáttum sem höfðu marktæk hrein (nettó)
tengsl við slæma geðheilsu, að teknu tilliti til annarra skýringaþátta. Niðurstöðurnar sýna að að-
hvarfslíkanið er marktækt og að skýringarmáttur þess er ágætur (Negelkerke R2 = 0,348). Efnislegur
skortur var sá skýringarþáttur sem fór fyrst inn í líkanið og hefur því öflugasta skýringarmáttinn af