Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Qupperneq 42
Vægi fjárhagsþrenginga í áhættu á þunglyndiseinkennum hjá launafólki á Íslandi á tímum kórónuveirunnar
42 ..
þeim skýringarþáttum sem mældir voru. Engu að síður er líkindahlutfall efnislegs skorts þó nokkuð
lægra nú en þegar það var greint óháð öðrum breytum. Það fer úr 16,9 í 12,9 (enginn skortur/skortir
alla þætti sem mældir voru). Líkindahlutfall þess að ná endum saman lækkar hlutfallslega enn meir,
fer úr 10,1 í 6,7 (mjög auðvelt að ná endum saman/mjög erfitt). Skýringarmáttur þessa mælikvarða
yfir huglæga upplifnun á fjárhagsþrengingum er minni en hvoru tveggja skýringarmáttur líkam-
legrar heilsu sem hefur næst öflugasta skýringarmáttinn og skýringarmáttur aldurs sem hefur þriðja
öflugasta skýringarmáttinn.
Tengsl þunglyndiseinkenna við innflytjendastöðu, hjúskaparstöðu, atvinnustöðu og fjölda barna
haldast einnig tölfræðilega marktæk í aðhvarfsgreiningunni en skýringarmáttur þeirra er minni en
breytanna sem áður eru nefndar og skýringarmáttur þeirra í samræmi við þá röð sem þær eru taldar
upp í hér. Í aðhvarfsgreiningunni mældust ekki marktæk tengsl við menntun, kyn eða að hafa nýtt
hlutabótaleið.
Umræður
Niðurstöður rannsóknarinnar sýna áberandi félags- og efnahagslegan ójöfnuð í geðheilsu við lok
þriðju bylgju COVID-19 faraldursins hér á landi. Tengsl mældust við alla félags- og efnahagslegu
þættina þegar þau voru skoðuð óháð öðrum áhættuþáttum. Það að búa við verulegan efnislegan
skort, eiga erfitt með að ná endum saman, vera atvinnulaus, vera innflytjandi, vera með grunnskóla-
próf en ekki háskólapróf, hafa verið á hlutabótaleið, eiga ekki maka, vera með börn undir 18 ára aldri
á framfæri sínu, vera undir þrítugu og/eða vera kona jók þannig allt líkur á þunglyndiseinkennum.
Það sama má segja um slæma líkamlega heilsu, sem einnig jók líkur á þunglyndiseinkennum. Þeg-
ar áhættan af fjárhagsþrengingaþáttunum tveimur var síðan metin með því að stjórna fyrir hinum
áhættuþáttunum kom í ljós að efnislegur skortur er öflugasti áhættuþáttur þunglyndiseinkenna og að
áhættumáttur þess að eiga erfitt með að ná endum saman er minni en hvoru tveggja þáttur líkam-
legrar heilsu og aldurs. Styrkur annarra félags- og efnahagslegra áhættuþátta er minni og áhættan
hverfur alveg hvað varðar menntun, kyn og að hafa verið á hlutabótaleið.
Niðurstöðurnar styðja við fyrri niðurstöður um að fjárhagsþrengingar séu áhættuþáttur slæmrar
geðheilsu umfram aðra félagsfjárhaglega þætti eins og atvinnuleysi (Crowe og Butterworth, 2016;
Zuelke o.fl., 2018) og tekjur (Butterworth o.fl., 2012; Dijkstra-Kersten o.fl., 2015; Kiely o.fl., 2015).
Niðurstöðurnar bæta um betur og sýna að fjárhagsþrengingar í formi beins efnislegs skorts vega
þar þyngra en huglæg upplifun af því hvernig gengur að ná endum saman. Ástæðan gæti verið sú
að efnislegur skortur mæli betur fjárhagsstöðu fólks. Fólk býr við skort vegna þess að það hefur
gengið á sparifé og eignir og nýtur ekki lengur lánstrausts. Það er þannig komið inn að beini fjár-
hagslega. Erfiðleikar við að ná endum saman geta á hinn bóginn verið mjög tímabundnir (Moisio,
2004). Hingað til hafa fæstar rannsóknir skoðað þessar tvær tegundir fjárhagsþrenginga samtímis.
Að auki styður rannsóknin við niðurstöður fyrri rannsókna hvað varðar svo kölluð skammtaviðbrögð
(e. dose-response evidence), það er að því meiri sem fjárhagsþrengingar séu því meiri sé áhættu-
máttur þeirra (Butterworth o.fl., 2012; McCarthy o.fl., 2018). Niðurstöðurnar sýna þannig að líkur
á þunglyndiseinkennum aukast þrettánfalt við það að hafa ekki ráð á neinum af þeim níu efnislegu
þáttum sem mælt var fyrir miðað við það að hafa ráð á þeim öllum eftir að stjórnað hefur verið fyrir
öðrum áhættuþáttum.
Rannsóknin er þversniðsrannsókn og niðurstöðurnar geta því ekki sagt til um orsakasamhengið á
milli fjárhagsþrenginga og þunglyndiseinkenna. Raunar hafa langtímarannsóknir heldur ekki getað
skorið úr um það með óyggjandi hætti hvort kemur á undan fjárhagsþrengingar eða slæm geðheilsa
og margt sem bendir til að fjárhagsþrengingar geti hvoru tveggja verið orsök og afleiðing vanheilsu
(Blázquez o.fl., 2014; Frankham o.fl., 2020). Nokkrar skýringar hafa verið gefnar á þeim ferlum
sem gætu verið í gangi. Svo kölluð nýefnisleg (e. neo-material) skýring gerir ráð fyrir að efnislegur