Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Page 46
Íslenska þjóðfélagið 1. tbl. 13. árgangur 2022, 46–62
© höfundar 2022. Tengiliður: Ragný Þóra, ragny@hi.is
Vefbirting 16. september 2022. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
„Límdu saman heiminn minn“
Ábyrgð stjórnvalda á að tryggja börnum og
ungmennum velferðarþjónustu
Ragný Þóra Guðjohnsen, lektor Menntavísindasviði
Telma Tórshamar, stundakennari Menntavísindasviði
ÚTDRÁTTUR: Markmið rannsóknarinnar var að kalla eftir sýn ungs
fólks sem glímir við vímuefnavanda á eigin neyslu og velferðarþjónustu
sem þeim hefur staðið til boða frá barnsaldri. Tekin voru viðtöl við ell-
efu einstaklinga (18–25 ára). Í niðurstöðum kom fram að viðmælendur
röktu upphaf vímuefnaneyslunnar til erfiðra aðstæðna í uppvextinum. Á
heimilum þeirra var vímuefna- og geðheilbrigðisvandi tíður og vanræksla,
tengslavandi og erfið samskipti einkenndu uppeldisskilyrði. Námserfið-
leikar og einelti gerðu skólagöngu þeirra erfiða og áföll þræddu sig í lífs-
göngu þeirra. Vímuefnaneyslan byrjaði sem flótti frá vanlíðan en breyttist
í forðun frá fráhvörfum. Af niðurstöðum má ráða að viðmælendur upp-
lifðu hjálparleysi í erfiðum aðstæðum heima og í skólanum og skort á
stuðningi og velferðarþjónustu þrátt fyrir stefnumótun stjórnvalda um hið
gagnstæða í málefnum barna. Kortleggja þarf þjónustuþörf barna í vanda
og sér í lagi þegar hann er fjölþættur. Sérfræðingar úr velferðarkerfum
þurfa að veita umönnunaraðilum heima og í skólanum heildstæða ráðgjöf
og stuðning með það að leiðarljósi að tryggja börnunum öruggar uppeld-
isaðstæður og stuðning við velferð, heilbrigði og menntun. Þörf er jafn-
framt á fjölbreyttari meðferðarúrræðum vegna vímuefnavanda ungmenna
með áherslu á sálræna aðstoð og inngrip sem styðja einstaklinga út í sam-
félagið. Óásættanlegt er að börn í vanda upplifi að enginn grípi sig.
LYKILORÐ: Vímuefnavandi barna og ungmenna – Velferðarþjónusta –
Stefnumótun stjórnvalda
ABSTRACT: The aim of the study was to explore how young people
who abuse substances view their consumption and the welfare services
available to them since childhood. Interviews were taken with eleven in-
dividuals (aged 18–25). The findings showed that the young people re-
lated the onset of their substance misuse to difficult circumstances dur-
ing their upbringing. Mental disorders and substance abuse of household
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni