Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Qupperneq 58
„Límdu saman heiminn minn“: Ábyrgð stjórnvalda á að tryggja börnum og ungmennum velferðarþjónustu
58 ..
við fjölþættar áskoranir bjóðist markviss stuðningur þar sem snemmbær inngrip eru talin geta skipt
sköpum um líðan þeirra, rétt til náms og að draga úr líkum á áhættuhegðun (Uchida o.fl., 2018).
Aðkallandi er að horfa heildrænt á þjónustuþarfir þessara barna og að skólinn, sveitarfélög og
utanaðkomandi sérfræðingar samþætti þjónustu sína og vinni með barninu, foreldrum og skólanum.
Reynsla síðasta áratugar hefur sýnt að töluvert ósamræmi er á milli markmiða laga og reglugerða
um þjónustu við börn og þess sem gerist í skólum í raun og veru (Birna Svanbjörnsdóttir o.fl.,
2019). Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins hefur því lagt til að ráðgjöf og velferðarþjónusta verði
stóraukin bæði við almennu grunnskólana og sérdeildir (Solveig Sigurðardóttir, 2021).
Margir viðmælenda höfðu reynslu af einelti í æsku og erfiðum samskiptum. Ljóst er að auka þarf
vinnu með samskiptahæfni í skólasamfélaginu, bæði til þess að draga úr einelti en einnig sem for-
varnainngrip þar sem langtímarannsóknir gefa til kynna að samskiptahæfni sé mikilvægt veganesti
út í lífið og til þess fallin að draga úr líkum á vímuefnaneyslu ungmenna (Sigrún Aðalbjarnardóttir,
2019).
Vímuefnaneysla ungmenna og meðferðarstarf með aukinni sálrænni þjónustu og
nýjum bjargráðum
Þrátt fyrir að vímuefnaneysla grunnskólabarna á Íslandi mælist með því lægsta sem gerist í Evrópu
þá er ákveðinn hópur ungmenna sem hefur vímuefnaneyslu snemma á ævinni (European Monitoring
Centre for Drugs and Drug Addiction, 2020) og þróar hratt með sér aukið neyslumynstur (Arnars-
son o.fl., 2017). Neysla viðmælenda var upphaflega þeirra leið til að draga úr vanlíðan en síðar
fór hún að snúast um að forðast fráhvörf og því áttu margir drauminn um betra líf án vímuefna. Í
skýrslu Heilbrigðisráðuneytisins (2021) um stöðu barna og ungmenna með neysluvanda kemur fram
að meðferðarúrræði séu ekki nægilega mörg eða fjölbreytt svo hægt sé að koma til móts við ein-
staklingsbundnar þarfir, sérstaklega þess hóps sem glímir við fjölþættan vanda. Þetta er í samræmi
við upplifun unga fólksins í rannsókninni því þrátt fyrir markmið meðferðaraðila hér á landi um að
einstaklingsmiða meðferðir (Barna- og fjölskyldustofa, e.d.) virðist það ekki skila sér nægilega til
ungmenna. Leggja þarf áherslu á velferð neytendans og að draga úr skaðlegum þáttum vímuefna-
neyslu með stuðningi við félagslega þætti og heilbrigði (Tham, 2021). Viðmælendur lögðu sérstaka
áherslu á að bjóða þyrfti aukna sérfræðiþjónustu til að vinna með geðraskanir og áföll. Einnig vanti
ný bjargráð í meðferðarstarfi til þess að takast á við daglegan veruleika. Þessi áhersla þeirra er í sam-
ræmi við viðmið um árangursríka ferla í meðferðarstarfi þar sem áhersla er á sálfélagslega nálgun,
áhugahvetjandi samtöl, virka meðferðarþátttöku, aðgengi að námi og virka samfélagsþátttöku (Fa-
dus o.fl., 2019).
Í meðferðarstarfi þarf að efla trú ungmenna á eigin styrkleika (Thurstone o.fl., 2017) þar sem al-
gengt er að grunnur úr uppeldinu hafi ekki stutt við hæfni til að takast á við verkefni fullorðinsáranna
(Soenens o.fl., 2017) eins og sjá mátti hjá viðmælendum. Þá þarf að aldurskipta meðferðarstarfi (del
Palacio-Gonzalez og Pedersen, 2022) til þess að hlúa að þroska einstaklinganna á viðeigandi hátt
og koma í veg fyrir smitáhrif eldri ungmenna til þeirra yngri eins og algengt er samkvæmt viðmæl-
endum. Loks þarf að huga að sérhæfðum úrræðum en aukin eftirspurn er eftir kannabismeðferð á
Norðurlöndum (Stenius, 2019).
Rétt er að hafa í huga að yfirstandandi er vinna við þróun meðferðarstarfs á vegum nýstofnaðrar
Barna- og fjölskyldustofu (2022).
Kerfin þurfa að grípa börn og ungmenni
Vímuefnavandi er oft birtingarmynd vanda sem verður til snemma á lífsleiðinni (Conway, 2016) líkt
og hjá viðmælendum sem lýstu vanlíðan, geðgreiningum, hegðunarvanda og erfiðum uppeldisað-
stæðum. Áföll höfðu jafnframt þrætt sig í lífsgöngu þeirra sem eykur líkur á geðrænum vanda og
vímuefnanotkun (Petruccelli, 2019). Í uppvextinum hefðu því einhvers staðar í kerfum samfélagsins
átt að hringja viðvörunarbjöllur.