Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Blaðsíða 59
Ragný Þóra Guðjohnsen og Telma Tórshamar
59 ..
Ungmennin upplifðu að enginn gripi þau þrátt fyrir erfiðar aðstæður heima og í skólanum og að
enginn kæmi þeim til bjargar í kjölfar áfalla. Þessi staða stríðir gegn markmiðum Barnasáttmálans
og íslenskri barnaverndarlöggjöf sem kveður á um rétt barna til að þroskast og hljóta vernd og um-
önnun. Sjá má að sjónum er þó í auknum mæli beint að áföllum í meðferðarstarfi (Barna- og fjöl-
skyldustofa, e.d.; Helga Lind Pálsdóttir og Anna María Jónsdóttir, 2022) og lágþröskuldaþjónustu
(Bergið Headspace, 2019).
Í Stefnu í geðheilbrigðismálum til 2030 (Stjórnarráð Íslands, 2022), er eitt megin leiðarstefið að
bæta aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu. Brýnt er að sjá það raungerast. Viðmælendur tilheyra hópi
ungmenna með fjölþættan vanda sem á hvað erfiðast með að ná bata í vímuefnameðferð (Þórarinn
Tyrfingsson, 2016). Búsetuúrræði fyrir þessa einstaklinga eru ekki tiltæk á vegum sveitarfélaga og
þjónustuþörf þeirra tengist inn í mörg velferðarkerfi sem oft skapar togstreitu um hver skuli bjóða
þjónustuna og hvar kostnaður hennar skuli liggja (Anna Eygló Karlsdóttir o.fl., 2021).
Takmarkanir rannsóknarinnar felast einkum í smæð hennar en á hinn bóginn ættu niðurstöður
að gefa djúpa innsýn í aðstæður ungs fólks sem glímir við vímuefnavanda og á að baki erfiða æsku.
Einnig skal nefnt að niðurstöður byggja á viðtölum við einstaklinga sem sumir hverjir voru enn í
virkri vímuefnaneyslu. Til þess að stuðla að réttmæti gagnanna var hliðvörður rannsakendum til
aðstoðar við að finna hentugan viðtalstíma með viðmælendum þegar þeir voru upplagðir og ekki í
fráhvörfum.
Lokaorð
Það er áskorun að rjúfa keðju áfalla einstaklinga eins og þeirra sem rætt var við í rannsókninni og
styðja þá til aukinnar farsældar og virkara lífs. Viðmælendur upplifðu fordóma og neikvætt við-
mót í opinberum úrræðum og sögðu það draga úr getu og vilja fólks til að leita sér aðstoðar. Hafa
verður í huga að þessi skjólstæðingahópur á oftast að baki sögu um einelti, ofbeldi og höfnun (Yang
o.fl., 2017). Sýn viðmælenda gefur vísbendingar um mikilvæga þætti sem snúa að því að tryggja
velferð barna og ungmenna. Vonir standa til að með nýsamþykktum farsældarlögum, Barna- og
fjölskyldustofu og stefnumótun um þjónustu fyrir börn og ungmenni með fjölþættan vanda (Anna
Eygló Karlsdóttir o.fl., 2021; Heilbrigðisráðuneytið, 2021) sé búið að undirbúa jarðveginn fyrir að
stíga stór skref í átt að heildstæðu þjónustumódeli með áherslu á þætti eins og þá sem viðmælendur
nefndu; velferðarþjónustu fyrir börn vegna erfiðra uppeldisaðstæðna, vanda í skólastarfi og til að ná
bata vegna áfalla og fjölþætts vanda. Til að svo megi verða þarf að tryggja fjármagn til verkefnanna,
samstarf margra aðila á vegum ríkis og sveitarfélaga og getu allra sveitarfélaga til þátttöku. Stefnu-
mótun ein og sér mun ekki skila árangri (Purcell, 2020). Börn sem búa við vanda eiga ekki að upplifa
hjálparleysi og að engin velferðarkerfi grípi sig.
Heimildaskrá
Alegría, M., Frank, R. G., Hansen, H. B., Sharfstein, J. M., Shim, R. S. og Tierney, M. (2021). Transforming mental health
and addiction services. Health Affairs, 40(2). https://doi.org/10.1377/hlthaff.2020.01472
Andersen, A., Gardarsdóttir, Ó., Janfelt, M., Lindgren, C., Markkola, P. og Söderlind, I. (2011). Barnen och välfärdspoli-
tiken. Nordiska barndomar 1900-2000. Dialogos Förlag.
Anna Eygló Karlsdóttir, Guðrún Marinósdóttir, Hákon Sigursteinsson, Helena Unnarsdóttir, Hildigunnur Árnadóttir og
Ragna Sigríður Reynisdóttir. (2021). Staða barna með fjölþættan vanda. Skýrsla stjórnenda í barnavernd á höfuðborg-
arsvæðinu. Samband sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. https://ssh.is/images/stories/Kynningarfundir/Skyrsla_v_
barna_med_fjolthaettan_vanda_Apr%C3%ADl_2021.pdf
Arnarsson, A. M., Kristofersson, G. K. og Bjarnason, T. (2017). Adolescent alcohol and cannabis use in Iceland 1995–
2015. Drug and Alcohol Review, 37(1), S49–S57. https://doi.org/10.1111/dar.12587
Áfengislög nr. 75/1998.
Bachman, J. G., O‘Malley, P. M., Schulenberg, J. E., Johnston, L. D., Freedman-Doan, P. og Messersmith, E. E. (2008).
The education-drug use connection. How successes and failures in school relate to adolescent smoking, drinking, drug
use and delinquency. Lawrence Erlbaum Association.