Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Page 63
Íslenska þjóðfélagið 1. tbl. 13. árgangur 2022, 63–82
© höfundar 2022. Tengiliður: Guðný Björk Eydal, ge@hi.is
Vefbirting 1. desember 2022. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Breytingar á verkaskiptingu á heimili
meðal starfandi feðra og mæðra
í fyrstu bylgju COVID-19
Guðný Björk Eydal, prófessor
Ingólfur V. Gíslason, prófessor
Tómas Bjarnason, sviðsstjóri
ÚTDRÁTTUR: COVID-19 hafði í för með sér meiriháttar breytingar
á högum fólks. Faraldurinn raskaði atvinnu- og heimilislífi með lokun
vinnustaða, aukinni heimavinnu og skertri þjónustu umönnunaraðila.
Að frumkvæði Utrecht-háskólans var hrint úr vör fjölþjóðlegri rannsókn
sem ber heitið „Gender (In)equality in Times of COVID-19“. Lagður var
spurningalisti fyrir foreldra um aðstæður þeirra í launaðri vinnu, skiptingu
heimilisstarfa og umönnunar og samþættingu launavinnu og umönnunará-
byrgðar, auk fleiri þátta. Á Íslandi var könnunin framkvæmd af Gallup
eftir að samkomubanni lauk í kjölfar fyrstu bylgju í maí 2020. Í þessari
grein eru áhrif farsóttarinnar á verkaskiptingu starfandi foreldra í sam-
búð skoðuð hvað varðar umönnun, heimilisstörf og samþættingu launa-
vinnu og umönnunarábyrgðar. Í ljósi erlendra niðurstaðna eru áhrif far-
sóttarinnar á þessa þætti greind eftir því hvar foreldrar inntu starf sitt af
hendi í farsóttinni; hvort þeir unnu fjarvinnu heima eða unnu áfram á
vinnustaðnum. Meginniðurstöður sýna að lítill kynbundinn munur kemur
fram varðandi það hvort fólk vann fjarvinnu heima eða á vinnustaðnum.
Mikill kynbundinn munur kom á hinn bóginn fram hvað varðar umönnun
og heimilisstörf, bæði fyrir farsóttina og eftir að hún skall á. Í samræmi
við nýlegar erlendar rannsóknir á áhrifum COVID-19 benda niðurstöður
til þess að skipting heimilisstarfa milli feðra og mæðra hafi orðið jafnari
við faraldurinn: Feður sem unnu heima sem áttu maka sem unnu áfram á
vinnustaðnum juku hlutdeild sína í heimilisstörfum og mæður sem unnu á
vinnustaðnum en áttu maka sem vann heima drógu úr hlutdeild sinni. Ekki
urðu sams konar breytingar á hvernig foreldrar deildu með sér umönnun
barna. Samþætting launavinnu og umönnunarábyrgðar varð erfiðari eftir
farsóttina og gekk verr hjá foreldrum ungra barna og hjá foreldrum sem
unnu heima. Niðurstaða fjölbreytugreiningar sýnir að samþætting launa-
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni