Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Side 69
Guðný Björk Eydal, Ingólfur V. Gíslason og Tómas Bjarnason
69 ..
vinnustaðnum, auki hlut sinn í umönnun og heimilisstörfum meira en feður gera í sömu sporum. Þá
benda rannsóknir einnig til þess að þar sem foreldrar vinna heima taki feður aukinn þátt í umönnun
barna sinna. Það er því mikilvægt að skoða hvernig foreldrar höguðu skiptingu heimilisstarfa og
umönnun barna m.t.t. þess hvernig þeir höguðu störfum sínu í faraldrinum. Þar sem ekki er gert ráð
fyrir að breytingar séu í eina eða aðra átt – í átt að auknum eða minni kynbundnum mun – eru öll töl-
fræðipróf tvíhliða. Þetta er í takt við að niðurstöður hafa verið nokkuð mótsagnakenndar hvað varðar
áhrif farsóttarinnar á kynbundna verkaskiptingu foreldra.
Fyrst skoðum við hvaða áhrif farsóttin hafði á hvernig starfandi foreldrar skiptu með sér um-
önnun barna sinna. Í öðru lagi skoðum við áhrif farsóttarinnar á verkaskiptingu heimilisstarfa meðal
sama hóps. Loks eru skoðuð áhrif farsóttarinnar á samþættingu launavinnu og umönnunarábyrgðar.
Allar niðurstöður eru skoðaðar sérstaklega eftir því hvar foreldrar unnu launavinnu þ.e. hvort báðir
foreldrar unnu fjarvinnu heima, hvort báðir foreldrar unnu á vinnustaðnum, eða hvort annað for-
eldrið vann heima og hitt á vinnustaðnum.
Aðferð
Framkvæmd
Við rannsóknina var notaður spurningalistinn Gender (In)equality in Times of COVID-19, sem var
unnin af fræðafólki við Háskólana í Utrecht, Amsterdam og Radboud, með góðfúslegu leyfi þess.
Rannsakendur þýddu listann og staðfærðu. Könnunin var lögð fyrir í lok fyrstu bylgju faraldursins
á tímabilinu 22. maí – 8. júní 2020. Um var að ræða netkönnun sem lögð var fyrir 1337 manns úr
viðhorfahópi Gallup á aldrinum 21–69 ára. A.m.k. eitt barn yngra en 18 ára bjó á heimili svarandans.
Alls svöruðu 653 og þátttökuhlutfall því 49%.
Mælingar
Skipting umönnunar milli foreldra var mæld með tveimur spurningum: „Hvernig skiptuð þú og maki
þinn með ykkur umönnun barna (þar með talið aðstoð við heimanám) fyrir kórónufaraldurinn?“ Í
kjölfarið var svo spurt sömu spurningar nema spurt var hvernig umönnun barna hefði verið skipt
eftir að faraldurinn hófst og til 4. maí. Svarmöguleikar voru á sjö punkta kvarða frá (1) „Ég gerði
næstum allt“ og til (7) „Maki minn gerði næstum allt.“
Skipting heimilisstarfa milli foreldra var mæld með því að spyrja „Hvernig skiptuð þú og maki
þinn með ykkur heimilisstörfum fyrir kórónufaraldurinn?“ Svo var spurt samskonar spurningar,
nema þá var vísað til tímans eftir að kórónufaraldurinn hófst og til 4. maí?“ Svarmöguleikar voru
aftur á sjö punkta kvarða frá (1) „Ég gerði næstum allt“ og til (7) „Maki minn gerði næstum allt.“
Mat foreldra á hvernig gengi að samþætta launavinnu og umönnunarábyrgðar var mælt með
tveimur spurningum: „Hversu auðvelt eða erfitt var það fyrir þig að samþætta launavinnu og um-
önnunarábyrgð þína fyrir kórónufaraldurinn?“ Og „Hversu auðvelt eða erfitt var það fyrir þig að
samþætta launavinnu og umönnunarábyrgð þína (þar með talið aðstoð við heimanám) eftir að dregið
var úr þjónustu leikskóla, skóla og frístundaheimila?“ Svarmöguleikar við báðum spurningum voru
á fimm punkta kvarða, frá (1) „Mjög erfitt“ til (5) „Mjög auðvelt.“
Þá var spurt um hvort svarandi og maki væru í launaðri vinnu eða ekki og um staðsetningu vinn-
unnar, hvort unnið væri heima eða á vinnustaðnum. Þá var spurt um breytingar á vinnutíma og á
hvaða tíma dags svarandi og maki unnu, auk spurninga um fjölda og aldur barna, menntun, og fleira.
Greining gagna
Hér er gerð grein fyrir niðurstöðum sem snúa að starfandi foreldrum með maka með eitt eða fleiri
börn á heimili, 18 ára eða yngra, og skoðað hvaða áhrif COVID-19 hafði á verkaskiptingu vegna
umönnunar og heimilisstarfa og mat á jafnvægi launavinnu og umönnunarábyrgðar, eftir því hvort