Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Qupperneq 70
Breytingar á verkaskiptingu á heimili meðal starfandi feðra og mæðra í fyrstu bylgju COVID-19
70 ..
foreldrar vinna staðvinnu eða fjarvinnu. Hér er um að ræða þversniðsrannsókn, en mat á áhrifum
farsóttarinnar er gerð með því að spyrja spurninga um stöðu og líðan fyrir og eftir farsóttina. Ein-
stæðum foreldrum og foreldrum sem ekki voru starfandi er sleppt úr þessari greiningu þar sem
markmiðið er að skoða hvort farsóttin hafði áhrif á hvernig starfandi foreldrar á heimili með barn
yngra en 18 ára á heimili skipta með sér verkum og upplifun þeirra af jafnvægi vinnu og einkalífs
við aðstæður þar sem umönnunarábyrgð er skyndilega aukin vegna minni þjónustu skóla, leikskóla
og frístundaheimila.
Til að skoða áhrif farsóttarinnar er lýsandi tölfræði fyrir mæður og feður skoðuð eftir staðsetn-
ingu vinnunnar með spurningum um stöðu mála fyrir og eftir að hún skall á. Notuð eru Kí-kvaðrat
próf til að skoða sambönd milli breyta. Einnig eru notuð t-próf til að skoða mun á meðaltölum á
spurningum þegar spurt er um stöðu fyrir og eftir COVID. Þá eru gerðar fjölbreytugreiningar þar
sem háðu breyturnar eru breytingar á svörum foreldra fyrir farsóttina og eftir að hún skall á hvað
varðar verkaskiptingu heimilisstarfa, umönnunar og jafnvægi vinnu og einkalífs. Spábreytur eru
staðsetning vinnunnar, kyn, aldur barna á heimili og menntun.
Niðurstöður
Stærsti hluti svarenda er 35–44 ára (44%) og næststærsti hópurinn er 45–54 ára (32%). Meirihluti
svarenda hefur lokið háskólanámi, eða sjö af hverjum tíu. Feður voru 46% og mæður 54%. Börn
yngri en 6 ára eru á heimili 45% svarenda, en þar geta einnig verið eldri börn (sjá töflu 1a).
Tafla 1a. Svarendur
Fjöldi Hlutfall
Mæður 231 54%
Háskólapróf 222 70%
Börn yngri en 6 ára á heimilinu 193 45%
Aldur
25-34 ára 81 19%
35-44 ára 188 44%
45-54 ára 135 32%
55 ára og eldri 25 6%
Staðsetning vinnunnar: Frá vinnustaðnum og inn á heimilið eða áfram á
vinnustaðnum?
Aðstæður foreldra voru mjög mismunandi, sumir sinntu starfi sínu alfarið heiman frá sér á meðan
aðrir sinntu t.d. framlínustörfum og voru jafnvel meira að heiman en venjulega. Ríflega helmingur
svarenda sagðist vinna eingöngu heima eða að hluta til heima vegna faraldursins. Lítið eitt lægra
hlutfall sagði það sama um aðstæður maka síns.
Á grundvelli þessara svara var starfandi foreldrum með maka skipt í fjóra hópa: a. báðir for-
eldrar vinna heima (n=160), b. maki vinnur heima, en svarandinn vinnur á vinnustaðnum (n=73),
c. svarandinn vinnur heima, en maki vinnur á vinnustaðnum (n=95), og d. báðir foreldrar vinna á
vinnustaðnum (n=101). Alls eru þetta 430 svör.
Tafla 1b sýnir hópana fjóra og hlutfall sem er með háskólamenntun í hverjum hópi. Áberandi
hærra menntunarstig er hjá þeim svarendum sem vinna heima miðað við þá sem vinna áfram á
vinnustaðnum. Svarendur í hópi a, þar sem svarandi vinnur heima og maki einnig, eru í miklum
meirihluta háskólamenntaðir. Svarendur í hópi d, þ.e. þeir sem segjast vinna á vinnustaðnum og
segja að maki geri það einnig, voru hlutfallslega mun oftar einvörðungu með grunnskólamenntun
(χ2= 35,3; Df = 6; p < .001).