Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Side 71

Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Side 71
Guðný Björk Eydal, Ingólfur V. Gíslason og Tómas Bjarnason 71 .. Tafla 1b. Hvar er launuðu starfi sinnt – staðvinna og fjarvinna svaranda og maka Hlutfall (%) Hlutfall svarenda með háskólapróf Hvar er starfi sinnt? a. Báðir foreldrar vinna heima 37% 81% b. Maki er heima en ég vinn á vinnustaðnum 17% 62% c. Ég er heima en makinn er á vinnustaðnum 22% 80% d. Báðir vinna á vinnustaðnum 24% 47% Alls 100% (n=430) 69% (n=319) Svarendum var skipt í tvo hópa eftir aldri barna á heimilinu. Annars vegar þar sem barn sex ára eða yngra var á heimili (45%), hvort sem eldra barn var einnig á heimilinu eða ekki, og hins vegar hóp þar sem eingöngu voru börn eldri en sex ára á heimilinu (55%). Ekki er munur á dreifingu á aldri barna hjá hópunum fjórum í töflu 1b, né heldur er munur á aldursdreifingu svarenda í hópunum fjórum. Hóparnir fjórir sem lýsa staðsetningu vinnunnar eru því eins hvað þetta varðar. Tæplega níu af hverjum tíu svarendum sögðu að fjölskyldan hefði fundið fyrir áhrifum minni þjónustu skóla og leikskóla. Tæpur þriðjungur sagði að börnin hefðu verið alfarið heima og ríflega 60% til viðbótar sögðu að börnin hefðu verið að hluta til heima. Tæplega einn af hverjum fimm svarendum sem áttu börn sex ára eða yngri sagði barnið/börnin alfarið hafa verið heima borið saman við ríflega þriðjung svarenda sem áttu eingöngu börn á grunnskólaaldri (χ2 = 18,2; Df = 1; p < .001). Ekki var munur á svörum feðra og mæðra né eftir menntun svarenda hvað varðar veru þeirra heima í farsóttinni. Hvort barn/börn voru alfarið heima eða ekki var heldur ekki tengt staðsetningu vinn- unnar (fjarvinna/staðvinna). Hjá helmingi svarenda urðu litlar breytingar vegna farsóttarinnar á því hvenær foreldrar unnu vinnu sína. Ríflega fimmtungur vann jafnmikið eða meira á venjulegum vinnudögum og jók vinnu á öðrum tímum (kvöld, helgar eða á frídögum), og ríflega 10% juku vinnu utan venjulegs vinnutíma en drógu úr vinnu á venjulegum vinnudögum. Alls juku því um 30% vinnu utan venjulegs vinnutíma. Lítill hópur dró úr vinnu á venjulegum vinnudögum og jók ekki vinnu á öðrum tímum (14%) og enn minni hópur jók vinnu á venjulegum vinnudögum (7%). Breytingar á vinnutímamynstri tengjast staðsetningu vinnunnar og voru mestar breytingar á vinnutímamynstri hjá þeim sem færðu vinnu sína heim vegna farsóttarinnar og minnstar þar sem báðir foreldrar unnu áfram á vinnustaðnum. Hvernig skiptu foreldrar með sér umönnun barna og heimilisstörfum? Spurt var um skiptingu umönnunar og heimilisstarfa milli foreldra, bæði fyrir farsótt og eftir að hún skall á, á sjö punkta kvarða frá „Ég gerði næstum allt“ (1) til „Maki gerði næstum allt“ (7). Í miðj- unni er „Jöfn skipting“ (4). Hærra gildi þýðir að maki gerir meira en svarandinn, en lægra gildi að svarandinn geri meira en makinn. Þegar hlutfallsdreifing er skoðuð voru svörin við spurningum um verkaskiptingu umönnunar og heimilisstarfa tekin saman í þrjá flokka: „Ég gerði meira en maki,“ „Jöfn skipting“ og „Maki gerði meira en ég“. Umönnun barna Skipting umönnunar milli foreldra er mjög kynbundin, bæði fyrir farsóttina og eftir að hún skall á. Mæður segjast í báðum tilvikum sinna umönnun í mun meira mæli en maki. Svör feðra eru samhljóma svörum mæðra og segjast feður almennt gera minna en maki, bæði fyrir farsóttina og eftir að hún skall á. Þó má sjá að feður telja verkaskiptinguna jafnari en mæður, bæði fyrir og eftir farsótt (sjá töflu 2).i Hlutfallsdreifing við spurningunni um umönnun var skoðuð eftir þremur flokkum. Aðeins 5% mæðra sögðu að maki sinnti meiri umönnun en þær fyrir faraldurinn, en fleiri, eða 12%, sögðu þann- ig í stakk búið eftir hann. Aðeins 7% feðra sögðust gera meira en maki fyrir farsótt en fleiri, eða 13%, eftir að hún skall á (sjá töflu 2).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Íslenska þjóðfélagið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.