Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Page 76
Breytingar á verkaskiptingu á heimili meðal starfandi feðra og mæðra í fyrstu bylgju COVID-19
76 ..
Samþætting vinnu og umönnunarábyrgðar
Spurt var hversu auðveld eða erfið samþætting launavinnu og umönnunarábyrgðar hafi verið (þar
með talin aðstoð við heimanám) bæði fyrir faraldurinn og eftir að dregið var úr þjónustu vegna hans.
Svarmöguleikar voru á fimm punkta kvarða frá mjög auðvelt (5) til mjög erfitt (1).
Flestir svarenda áttu auðvelt með að samþætta vinnu og umönnun áður en farsóttin skall á (61%),
um það bil fimmti hver sagði að það væri hvorki auðvelt né erfitt (22%) og um það bil sjöundi hver
átti erfitt með það (17%). Næstum tvöfalt fleiri (31%) sögðust eiga erfiðara með að samþætta vinnu
og umönnunarábyrgð eftir að heimsfaraldurinn skall á en fyrir hann (sjá töflu 9).
Tafla 9. Samþætting launavinnu og umönnunarábyrgðar – fyrir farsótt og eftir
… fyrir faraldurinn … eftir að dregið var úr þjónustu
Hlutfall Fjöldi Hlutfall Fjöldi
Auðvelt-erfitt að samþætta launa-
vinnu og umönnunarábyrgð?
Auðvelt 61% 237 48%* 184
Hvorki né 22% 87 20% 77
Erfitt 17% 67 31%* 120
Samtals 100% 391 100% 381
*Munur á hlutfallstölum í svörum fyrir og eftir faraldurinn er marktækur (p < .05)
Meðaltal 3,61 3,26
Staðalfrávik 1,01 1,21
Breytingin á svörum fyrir og eftir farsóttina er vel marktæk (χ2 = 22,1; Df = 2; p < .001). Það gildir
einnig um breytingu á meðaltali svaranna (parað t-próf, t = -6,5, p < .001). Báðar greiningar sýna að
samþætting launavinnu og umönnunarábyrgðar versnaði mjög við faraldurinn.
Til að skoða breytingar í svörum við farsóttina voru svör við fyrri spurningunni dregin frá þeirri
seinni. Báðar spurningar eru á kvarðanum 1 til 5 og breytingar geta því tekið gildi frá lægst ±0 (engar
breytingar) til ±4 (mestu breytingar). Neikvæð tölugildi þýða að samþættingin hafi versnað, en já-
kvæð tölugildi að hún hafi batnað. Samþættingin versnaði marktækt bæði hjá feðrum (t = -3,8; p <
.001) og mæðrum (t = -5,3; p < .001). Hvorki var martækur munur á meðaltölum feðra og mæðra
fyrir farsóttina né eftir að hún skall á.
Foreldrar yngri barna sögðu samþættingu launavinnu og umönnunar erfiðari en þeir sem voru
með eldri börn bæði fyrir (t = -5,7; p < .001) og eftir faraldurinn (t = -7,4; p < .001). Auk þess má
greina neikvæðari breytingar í samþættingu launavinnu og umönnunar hjá foreldrum yngri barna
miðað við þar sem ekki voru börn sex ára eða yngra á heimili (t = -2,6; p < .01). Ekki var munur
á samþættingu launavinnu og umönnunarábyrgðar eftir menntun fyrir farsóttina, en marktækt nei-
kvæðari breyting varð á samþættingu launavinnu og umönnunar hjá fólki með háskólapróf en hjá
þeim sem voru með aðra menntun (t = -2,1; p < .05). Einnig má sjá að samþætting launavinnu og
umönnunar breyttist eftir því hvar var unnið (staðvinna/fjarvinna) og þá í neikvæðari átt þar sem
svarandinn vann heima en mun minna ef svarandinn vann á vinnustaðnum (sjá töflu 10).