Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Qupperneq 80
Breytingar á verkaskiptingu á heimili meðal starfandi feðra og mæðra í fyrstu bylgju COVID-19
80 ..
mikil áhrif farsóttin hafði á stofnanir samfélagsins, t.d. lokanir vinnustaða, skóla og leikskóla.
Niðurstöður þessarar könnunar sýna að verkaskipting umönnunar barna og heimilisstarfa er kyn-
bundin, bæði fyrir farsótt og á meðan hún geisaði. Hvað varðar umönnun má sjá breytingar í svörum
feðra í þá átt að þeir taki meiri ábyrgð á umönnun eftir að farsóttin skall á en fyrir hana. Svör mæðra
staðfesta ekki slíkar breytingar– heldur má sjá að mæður bæði auka hlutdeild sína og draga úr henni.
Því er ekki hægt að staðfesta að breyting verði á kynbundnu mynstri umönnunar við farsóttina þrátt
fyrir aukið álag vegna minni þjónustu skóla og leikskóla.
Hvað varðar heimilisstörf er myndin önnur. Þar eru feður og mæður sammála um að verkaskipt-
ing vegna heimilisstarfa hafi breyst við farsóttina og að feður hafi aukið hlutdeild sína í heimilis-
störfum og mæður dregið úr henni. Greiningin sýnir einnig að mikilvægt er að skoða staðsetningu
vinnunnar – hvar vinnan er innt af hendi – til að skilja þessar breytingar til fulls. Þessar breytingar
eru skýrastar þar sem feður vinna fjarvinnu heima en makinn vinnur á vinnustaðnum. Þar auka
feður hlutdeild sína í heimilisstörfum mest en mæður draga mest úr. Þetta virðist vera í samræmi við
almenna þróun á Vesturlöndum og e.t.v. sérstaklega á Norðurlöndunum, þ.e. að heimilisstörfum er
sinnt af þeim sem til þess hefur bestan tíma og aðstæður (sbr. Eurofound 2020).
Áhugavert er að áhrif farsóttarinnar á kynbundna verkaskiptingu komi aðeins fram hvað varðar
heimilisstörf en ekki umönnun. Hérlendis hefur löggjöf um fæðingarorlof verið hvati til þátttöku
beggja foreldra í umönnun barna. Þess ber þó að geta að umönnun getur dreifst á fleiri aðila en for-
eldra, en ekki var spurt um umönnun annarra aðila, svo sem eldri barna, afa eða ömmu.
Í niðurstöðum má sjá talsverðan breytileika hvað varðar breytingar á ábyrgð mæðra á umönnun
vegna farsóttarinnar. Þetta er í samræmi við niðurstöður Hagstofu (2021), þar sem ein niðurstaðan
er að farsóttin hafði áhrif bæði til meiri jöfnuðar og ójöfnuðar í verkaskiptingu foreldra. Ef til vill
má þá sjá hér þróun í átt til skautunar fjölskyldna þar sem sumar fjölskyldur draga úr kynbundinni
verkaskiptingu en aðrar fjölskyldur auka hana. Hugsanlega getur hér verið um að ræða samspil
ólíkra þátta sem ekki eru mældir í þessari könnun.
Áhrif farsóttarinnar á samþættingu launavinnu og umönnunarábyrgðar voru neikvæð á báða for-
eldra. En niðurstaðan sýnir einnig flókið samspil staðsetningar vinnunnar og kynbundinnar verka-
skiptingar. Þar kemur skýrt fram að aukið álag lagðist þyngra á mæður sem unnu fjarvinnu heima.
Niðurstaða þessarar rannsóknar sýnir ekki einhlíta mynd, heldur breytileika í viðbrögðum for-
eldra hvað varðar umönnun, heimilisstörf og álag vegna breyttra aðstæðna, heimavinnu og minni
þjónustu skóla og leikskóla. Hvað varðar umönnun veldur farsóttin ekki áberandi breytingum á
kynbundinni verkaskiptingu foreldra en hvað varðar heimilisstörf eru bæði mæður og feður sam-
mála um að feður hafi aukið hlutdeild sína og mæður dregið úr henni við farsóttina, sérstaklega þar
sem feður unnu heima og makinn á vinnustaðnum. Hið aukna álag sem farsóttin skapaði foreldrum
lagðist þó af meiri þunga á mæður og sérstaklega á mæður sem unnu fjarvinnu heima. Þetta er í takt
við niðurstöður sem sýna að kynbundin verkaskipting hefur tilhneigingu til að ýkjast frekar þegar
mæður vinna fjarvinnu heima.
Heimildaskrá
Abendroth, A. K., Huffman, M. L., og Treas, J. (2014). The parity penalty in life course perspective: Motherhood
and occupational status in 13 European countries. American Sociological Review, 79(5), 993–1014. https://doi.
org/10.1177/0003122414545986
Adams-Prassl, A., Boneva, T., Golin, M., og Rauh, C. (2020). Inequality in the impact of the coronavirus shock: Evidence
from Real Time Surveys. IZA DP No. 13183. https://docs.iza.org/dp13183.pdf
Adema, W., Clarke, C., Fray, V., Greulich, A., Kim, H., Rattenhuber, P., og Thévenon, O. (2017). Work/life balance policy
Aftanmálsgreinar
i Athuga skal að könnunin er framkvæmd eftir fyrstu bylgju farsóttarinnar og að svarendur eru því að rifja upp stöðuna
fyrir farsóttina. Hér er því ekki um langtímasnið að ræða.