Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Blaðsíða 83
Íslenska þjóðfélagið 1. tbl. 13. árgangur 2022, 83–106
© höfundar 2022. Tengiliður: Hermína Gunnþórsdóttir, hermina@unak.is
Vefbirting 5. desember 2022. Birtist á vefnum https://www.thjodfelagid.is
Útgefandi: Félagsfræðingafélag Íslands, Gimli, Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Skólaþjónusta sveitarfélaga við nemendur
og foreldra: Stefna, skipulag og inntak
Hermína Gunnþórsdóttir prófessor við Háskólann á Akureyri
Rúnar Sigþórsson prófessor emeritus við Háskólann á Akureyri
Jórunn Elídóttir dósent við Háskólann á Akureyri
Birna María B. Svanbjörnsdóttir dósent við Háskólann á Akureyri
Sigríður Margrét Sigurðardóttir lektor við Háskólann á Akureyri
ÚTDRÁTTUR: Í þessari grein er sjónum beint að þeim þætti í skóla-
þjónustu sveitarfélaga sem skilgreindur er í reglugerð um þjónustuna (nr.
444/2019) sem stuðningur við nemendur í leik- og grunnskólum og for-
eldra þeirra. Leitast er við að svara því hvað einkenni stefnu sveitarfélaga
um þennan þátt skólaþjónustu, skipulag hans og inntak, og hversu lík-
legt sé að það stuðli að menntun fyrir alla. Niðurstöður greinarinnar eru
hluti stærri rannsóknar á skólaþjónustu sveitarfélaga. Þær eru byggðar
á spurningakönnun til skólastjóra leik- og grunnskóla og forsvarsaðila
skólaþjónustu, viðtölum við forsvarsaðila skólaþjónustu í fimm tilvikum
og greiningu á stefnuskjölum á vefjum sveitarfélaganna. Meginniðurstöð-
urnar eru eftirfarandi: 1) að stefna og starfshættir skólaþjónustu einkennist
af áherslu á greiningu frávika sem skilgreind eru sem vandi nemenda, 2)
að auka þurfi skilvirkni ráðgjafar í kjölfar greininga og efla sameiginlegan
skilning á eðli og inntaki hennar, 3) að efla þurfi stuðning skólaþjónustu
við að takast á við áskoranir varðandi menntun fyrir alla og 4) að þörf sé
á virkari samhæfingu þjónustukerfa utan skólans. Niðurstöðurnar beina
athygli að menntun fyrir alla og jafnræði til náms á landsvísu og þær munu
nýtast sveitarfélögum til að styrkja þjónustu við einstaka nemendur og
kennara og til að efla skóla sem faglegar stofnanir.
LYKILORÐ: skólaþjónusta - greiningar - klínískt og félagslegt sjónar-
horn - menntun fyrir alla - skólamiðuð ráðgjöf
ABSTRACT: This paper focuses on the part of municipal school services
in Iceland that comprises support to students in preschools and primary
schools, and their parents. It seeks to answer the question what charac-
ÍSLENSKA
ÞJÓÐFÉLAGIÐ
tímarit um íslenskt þjóðfelag … … sem fræðilegt viðfangsefni