Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Page 89

Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Page 89
Hermína, Rúnar, Jórunn, Birna María og Sigríður Margrét 89 .. skólastjórar, leikskólastjórar og forsvarsaðilar skólaþjónustu) og greindur munur á dreifingu svara þessara hópa með kí-kvaðrat marktektarprófi miðað við 95% öryggismörk. Í þriðja lagi er greining á dreifingu svara eftir rekstrarformi skólaskrifstofa, einnig með kí-kvaðrat marktektarprófi miðað við 95% öryggismörk. Viðtölin voru afrituð orðrétt og greind í Nvivo. Greiningin tók mið af þemagreiningu Braun og félaga (2018). Efnið var flokkað eftir efnisþáttum með skilgreindum undirflokkum. Þannig var hægt að draga saman meginþemu viðtala til að fá yfirsýn og heildarmynd af inntakinu. Loks voru dregin saman fjögur meginþemu sem jafnframt stjórna framsetningu niðurstöðukaflans. Skjöl sem safnað var af vef sveitarfélaganna í tilvikunum fimm voru greind út frá þremur megin- spurningum: 1) Hversu skýr stefna sveitarfélaganna um skipulag og inntak skólaþjónustu birtist á vefsíðum þeirra og hvaða áherslu má lesa út úr henni um það sem skólaþjónustan á að sinna? 2) Hvers konar þjónustustefna birtist í umfjöllun skólaskrifstofa sveitarfélaganna um eigin starf- semi? og 3) Hver er umgjörð, skipulag og starfsskilyrði skólaþjónustunnar? Að auki var kannað hvers konar eyðublöð, til dæmis til að sækja um þjónustu, eru aðgengileg og enn fremur aðgengi að ýmsum upplýsingum um skólaþjónustuna, svo sem um starfsfólk, starfslýsingar og samstarf við önnur þjónustukerfi. Rannsóknin var unnin í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (nr. 90/2018). Viðmælendur skrifuðu undir upplýst samþykki um þátttöku þar sem rannsóknin var kynnt sem og réttur þeirra sem viðmælendur. Niðurstöður Niðurstöðunum er skipt í eftirfarandi þemu: 1) stefna og starfshættir skólaþjónustu, 2) ferli greininga og ráðgjafar, 3) áskoranir um menntun fyrir alla og 4) samstarf þjónustukerfa. Í hverju þema er fléttað saman gögnum úr gagnasettunum þremur sem lýst er í aðferðafræðikaflanum. Stefna og starfshættir Svarendur töldu flestir að umfjöllun um skólaþjónustu í skólastefnu sveitarfélagsins þar sem þeir störfuðu væri skýr. Þó voru töluvert fleiri skólastjórar en forsvarsaðilar skólaþjónustu sem töldu svo vera; 71% grunnskólastjóra og 80% leikskólastjóra á móti 56% forsvarsaðila. Munurinn er þó ekki tölfræðilega marktækur (tafla 2). Tafla 2. Hversu skýr eða óskýr er umfjöllun um skólaþjónustu í skólastefnu sveitarfélagsins? Svör – allir þátttakendur Fjöldi Hlutfall % 95% öryggisbil Mjög skýr 59 23,0 18,1–28,4 Frekar skýr 129 52,2 44,1–56,3 Frekar óskýr 41 16,0 11,9–20,8 Mjög óskýr 18 7,0 4,4–10,6 Engin skólastefna til 3 1,2 0,3–3,1 Veit ekki 7 2,7 1,2–5,3 Alls svör 257 100 Svöruðu ekki 11 Þátttakendur alls 268 Svör eftir starfs­ vettvangi (e-m) Fjöldi svara Mjög skýr Frekar skýr Frekar óskýr Mjög óskýr Engin skólast. Veit ekki Grunnskólastjórar 96 19,8% 51,0% 15,6% 7,3% 2,1% 4,2% Leikskólastjórar 125 27,2% 52,8% 10,4% 6,4% 0,8% 2,4% Í forsvari fyrir skólaþj. 36 16,7% 38,9% 36,1% 8,3% 0,0% 0,0%
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Íslenska þjóðfélagið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenska þjóðfélagið
https://timarit.is/publication/1165

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.