Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Side 90
Skólaþjónusta sveitarfélaga við nemendur og foreldra: Stefna, skipulag og inntak
90 ..
Við skjalagreiningu fundust aftur á móti takmarkaðar upplýsingar um stefnu sveitarfélaga eða þjón-
ustustefnu skólaskrifstofa. Í einu tilvikanna fimm var sæmilega skýr lýsing á viðfangsefnum skóla-
þjónustu á vef sveitarfélagsins og í skólastefnu þess. Í hinum fjórum tilvikunum voru upplýsingar
takmarkaðar eða jafnvel engar eða endurspegluðu ekki reglugerðina um skólaþjónustu að því leyti
að meiri áhersla var á greiningar og sérúrræði en aðra þætti þjónustunnar. Í viðtölunum sögðust
fræðslustjórar meðvitaðir um ákvæði reglugerðarinnar og nota hana til leiðsagnar við skipulagningu
þjónustunnar.
Niðurstöður sýndu að ekki leggja allir sama skilning í hugtakið skólaþjónusta eða meta viðfangs-
efni hennar eins. Þannig töldu á bilinu 66–91% allra svarenda að skólaþjónustan leggi mjög mikla
eða frekar mikla áherslu á að veita nemendum og foreldrum stuðning með ráðgjöf vegna a) náms-
vanda, b) félagslegra aðstæðna, c) sálræns vanda, d) hegðunarvanda e) með greiningum á námsstöðu
nemenda og f) skilafundum með foreldrum í kjölfar greiningar. Fæstir í hópi grunnskólastjóra töldu
áhersluna mikla (47–69%) en um og yfir 90% forsvarsmanna skólaþjónustu. Mat leikskólastjóra lá
þarna á milli. Munurinn milli svarendahópanna var marktækur með einni undantekningu og hlið-
stætt munstur í dreifingu svaranna (tafla 3a og töflur 3b–3f í viðauka).
Tafla 3a. Hversu mikla eða litla áherslu leggur skólaþjónustan á að veita nemendum og
foreldrum stuðning með ráðgjöf vegna námsvanda
Svör – allir þátttakendur Fjöldi Hlutfall % 95% öryggisbil
Mjög mikla 59 12,1 8,2–17,1
Frekar mikla 129 53,9 47,1–60,6
Fremur litla 41 18,0 13,2–23,6
Mjög litla/enga 18 5,8 3,2–9,7
Veit ekki 3 10,2 6,6–14,9
Alls svör 206 100
Svöruðu ekki 62
Þátttakendur alls 268
Svör eftir starfsvettvangi
(p < .001)
Fjöldi
svara
Mjög
mikla
Fremur
mikla
Fremur
litla
Mjög litla/
enga
Veit
ekki
Grunnskólastjórar 73 4,1% 42,5% 37,0% 12,3% 4,1%
Leikskólastjórar 100 13,0% 59,0% 9,0% 2,0% 17,0%
Í forsvari fyrir skólaþj. 33 27,3% 63,7% 3,0% 3,0% 3,0%
Spurningakönnunin sýnir einnig að helmingur þeirra svöruðu spurningu um hlutfall tilgreindra
starfsþátta af viðfangsefnum skólaþjónustunnar taldi að á bilinu 0–40% af viðfangsefnum hennar
felist í stuðningi við nemendur og 47% til viðbótar töldu slíkan stuðning á bilinu 40–79%. Mark-
tækur munur var á svörum eftir starfsvettvangi svarenda: Um 35% grunnskólastjóra á móti 57%
leikskólastjóra töldu að stuðningur við nemendur sé 40–79% af viðfangsefnum skólaþjónustunnar
en um 45% forsvarsaðila skólaskrifstofa voru þessa sinnis (tafla 4). Viðtalsrannsóknin gefur sam-
bærilegar vísbendingar um að þjónustan við foreldra og börn sé að mestu tengd greiningum og
úrræðum í kjölfar þeirra og rímar það við lýsingar á heimasíðum sveitarfélaganna um þjónustuna.
Langflestir viðmælendur álitu að hugtakið skólaþjónusta nái yfir vítt svið en að innan skólanna sé
tilhneiging til að líta þrengra á hugtakið, með áherslu á greiningar á nemendum. Í öllum tilvikunum
sögðu viðmælendur að skólastjórar og foreldrar kölluðu mikið eftir greiningum og sálfræðingur á
einni skólaskrifstofunni sagði að eftir því sem skrifstofan annaði fleiri greiningum þeim mun meiri
yrði eftirspurnin: