Íslenska þjóðfélagið - 16.12.2022, Qupperneq 98
Skólaþjónusta sveitarfélaga við nemendur og foreldra: Stefna, skipulag og inntak
98 ..
aftur á móti dæmi um hið gagnstæða þar sem samstarf við heilsugæsluna hafði dregist saman í sam-
ræmi við skerta viðveru hjúkrunarfræðinga í grunnskólum og þar með aðkoma þeirra að málefnum
nemenda. Þetta samstarf hafði einnig dregist saman í leikskólunum eftir að hætt var að framkvæma
4½ árs skoðun í leikskólunum og hún færð yfir til heilsugæslunnar.
Fleiri dæmi um samþættingu kerfa voru einnig nefnd í viðtölunum (t.d. þar sem velferðar- og
skólaþjónusta er rekin saman). Í þeim tilfellum þar sem reynt hefur verið að formgera samstarfið
virðist sem félagsþjónustan sé oftar en ekki drifkrafturinn í því að efla og koma á slíku samstarfi og
er samþættingin þannig frekar á forsendum hennar en skólaþjónustunnar.
Umræður
Rannsóknarspurningin sem leitað var svara við var: Hvað einkennir stefnu, skipulag og inntak
skólaþjónustu sveitarfélaga við nemendur og foreldra þeirra og hversu líklegt er að það stuðli að
menntun fyrir alla? Hér reifum við fyrst þrjú þemu sem koma fram í niðurstöðunum: 1) Stefnu og
inntak skólaþjónustu, 2) ráðgjöf og eftirfylgd og 3) samstarf þjónustukerfa innan skólanna. Því næst
ályktum við um hversu líklegt sé að skólaþjónustan stuðli að menntun fyrir alla.
Stefna og inntak þjónustu við nemendur og foreldra
Af vefsíðum sveitarfélaganna sem könnuð voru með skjalagreiningu verður ekki annað séð en að
þau þurfi flest að framfylgja af meiri alvöru því ákvæði reglugerðar um skólaþjónustu (nr. 444/2019),
að mæla fyrir um það í skólastefnu sinni hvernig markmiðum reglugerðarinnar verði náð og auka
almennt upplýsingar um þennan mikilvæga þátt í skólahaldi á vefsíðum sínum. Hverfandi merki
voru um þetta í skjölunum. Ekki verður alhæft um þetta út frá tilvikunum fimm en rannsókn Rúnars
Sigþórssonar (2013) bendir þó til hins sama. Mikill munur, sem kom fram í spurningakönnun, á
viðhorfum skólastjóra annars vegar og forsvarsmanna skólaþjónustu hins vegar til stefnunnar gefur
einnig vísbendingar um að stefnan sé hvorki skýr né hafin yfir túlkun einstakra starfsmanna og hægt
sé að finna mismunandi starfsháttum stað innan hennar.
Aftur á móti telja fræðslustjórar sem rætt var við sig vel meðvitaða um ákvæði reglugerðarinnar
um skólaþjónustu (nr. 444/2019) og segjast nota hana sem leiðarvísi til að móta starfið. Í spurninga-
könnun var engu að síður áberandi munur á svörum skólastjóra (einkum grunnskóla) annars vegar
og þeirra sem eru í forsvari fyrir skólaþjónustuna hins vegar um einstaka þætti skólaþjónustunnar. Af
því er varla hægt að draga aðra ályktun en að þörf sé á virkara samtali, bæði innan skólaþjónustunnar
sjálfrar og milli skólaþjónustunnar og skóla til að efla sameiginlegan skilning á því hvert eigi að vera
– og sé í raun og veru – inntak þjónustunnar.
Þrátt fyrir að fræðslustjórar telji sig meðvitaða um ákvæði reglugerðarinnar um skólaþjónustu
og telji hana ná yfir bæði þau meginsvið sem tilgreind eru í 2. grein hennar (reglugerð 444/2019)
er greinileg slagsíða á viðfangsefnum þjónustunnar í þá átt að hún sinni í meira mæli þjónustu við
einstaka nemendur og foreldra þeirra en stuðningi við starfsemi skóla og starfsfólk. Með hliðsjón
af greiningu Fullan (2010) á samábyrgð ríkis, fræðsluumdæma og skóla fyrir gæðum menntunar
má álykta að skýrari stefnu þurfi af hálfu sveitarfélaga um hvernig skólaþjónustan getur stuðlað að
menntun fyrir alla og markvissari aðgerðir af hálfu skólaþjónustunnar til að auka hæfni skóla til að
framfylgja þeirri menntasýn yfirvalda.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að starfsfólk skólaþjónustunnar sé upp til hópa sál-
fræðingar og í einhverjum mæli sérkennarar, sem flestir sinna einkum greiningum af ýmsu tagi.
Flestir viðmælendur telja þjónustuna undirmannaða og fleira starfsfólk þurfi til að sinna kennsluráð-
gjöf. Það er þó ekki skýrt af orðum viðmælenda hvort kennsluráðgjafar fást ekki til starfa eða hvort
þeir líta svo á að það sé ekki hlutverk sálfræðinga og sérkennara að veita skólamiðaða kennsluráð-
gjöf (Gutkin og Curtis, 2009; Larney, 2003), til dæmis í framhaldi af greiningum. Enn fremur er
óljóst hvort það skorti vilja og áræðni innan skólaþjónustunnar – eða samþykki skólanna sem njóta
hennar – til að draga úr vægi greininga og leggja aukna áherslu á kennsluráðgjöf.