Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 51
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 51
FREKARI UPPLÝSINGAR VEITA SÖLURÁÐGJAFAR OKKAR, HAFÐU SAMBAND:
Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík | Sími 588-9000 | sala@optima.is | www.optima.is
AÐGANGSSTÝRÐIR LYFJASKÁPAR MEÐ INNBYGGÐUM HUGBÚNAÐI
Örugg og rekjanleg
meðhöndlun lyfja
Öryggi fyrir skjólstæðinga – rétt lyf, réttur skammtur, á réttum tíma
Ánægðir starfsmenn – auðveld og örugg meðhöndlun lyfja
Aukið hagræði – skilvirkir ferlar og utanumhald
Námskeiðið heitir HJÚ157F Ráðgjöf um
getnaðarvarnir – lyfjaávísanir og er 6 ECTS-
einingar og er bæði fræðilegt og klínískt.
Fræðilegi hlutinn er kenndur í einni lotu sem
byrjar í lok september og lýkur með rafrænu
prófi. Lotan hefst mánudaginn 27. september
og lýkur föstudaginn 1. október. Nemendur
vinna síðan tvö klínísk verkefni og ljúka
námskeiðinu í lok haustannar. Lágmarksfjöldi er
15 nemendur og hámarksfjöldi 20 nemendur.
Á námskeiðinu læra nemendur almennt um
getnaðarvarnir, sérstaklega um hormóna-
getnaðarvarnir, og hvernig skuli standa að
ráðgjöf um getnaðarvarnir. Námskeiðinu er
ætlað að gefa fræðilegan grunn en jafnframt
að byggja upp klíníska færni svo nemandi sé
fær um að ávísa hormónagetnaðarvörnum,
fylgja þeim konum eftir sem fá getnaðarvarnir
og takast á við þær aukaverkanir sem upp
kunna að koma. Sýnt er hvernig hormónastafur
og lykkja er sett upp og fjarlægð og nemendur
fá tækifæri til að æfa sig.
Fyrir starfandi hjúkrunarfræðinga þarf að
sækja um námið í gegnum Endurmenntun.
Umsóknarfrestur verður til og með 13. ágúst.
Ekki er tekið við umsóknum eftir þann
tíma. Nemendur við Hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands skrá sig í námskeiðið með
hefðbundnum hætti. Nemendur við Háskólann
á Akureyri þurfa að sækja um námið sem
gestanemar fyrir 15. ágúst. Upplýsingar um
gestanám: https://www.hi.is/nam/gestanam_
opinberir_haskolar
Við viljum hvetja hjúkrunarfræðinga í
heilsugæslunni til að nýta sér þetta tækifæri
sem námskeiðið Ráðgjöf um getnaðarvarnir
– lyfjaávísanir gefur hjúkrunarfræðingum,
sérstaklega í heislugæslunni.
Umsjónarkennarar eru Sóley S. Bender
prófessor og Hildur Sigurðardóttir lektor.
Á vegum Hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands verður haustið 2021
boðið upp á námskeið til að undirbúa hjúkrunarfræðinga í að veita ráðgjöf
um getnaðarvarnir og ávísa hormónagetnaðarvörnum. Það er ætlað
hjúkrunarfræðingum sem lokið hafa eða stunda meistaranám í heilsugæslu.
RÁÐGJÖF UM GETNAÐARVARNIR –
LYFJAÁVÍSANIR