Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 49
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 49
hafs og vestan komið á fót hreyfingum sem markvisst
vinna að því að efla þekkingu og færni til forystu í
umhverfis- og loftslagsmálum. Í Bandaríkjunum hefur
Alliance of Nurses for Healthy Environments verið
starfsrækt frá 2008 (sjá ANHE – Alliance of Nurses
for Healthy Environments (envirn.org)). Tilgangur
ANHE er að stuðla að heilbrigði fólks og umhverfis
með fræðslu og forystu meðal hjúkrunarfræðinga,
styðja við rannsóknir, nota gagnreynda starfshætti
og hafa áhrif á stefnumótun. ANHE hefur á þeim
rúma áratug, sem það hefur starfað, unnið sér sess í
bandarísku hjúkrunarsamfélagi, verið virkt, og beitt
sér út frá forsendum hjúkrunar með heilbrigði fólks
og umhverfis að leiðarljósi.
Í Evrópu eru nýstofnuð samtök hjúkrunarfræðinga
um loftslagsbreytingar, Nurses Climate Challenge
Europe, sem hafa það markmið að koma af
stað hreyfingu meðal heilbrigðisstarfsfólks sem
er reiðubúið að skuldbinda sig til að vinna að
lausnum við umhverfisvánni í heilbrigðisþjónustu
og í samfélaginu gegnum fræðslu og myndun
tengslanets heilbrigðisstarfsfólks (Health Care
Without Harm, 2021, sjá About | NCC Europe
(nursesclimatechallenge.org)). Nurses Climate
Challenge Europe-samtökin spretta upp úr Health
Care Without Harm (HCWH) sem eru samtök
evrópskra heilbrigðiskerfa, sjúkrahúsa og annarrar
heilbrigðisþjónustu, opinberra aðila, háskóla,
félaga sem vinna að umhverfismálum og fagfélaga
heilbrigðisstétta (Health Care Without Harm, 2021,
sjá About | NCC Europe (nursesclimatechallenge.
org)). Ísland á einn fulltrúa í HCWH sem er
Landspítali.
Að því er höfundar best vita eru ekki til nein
samtök eða félag á heilbrigðissviði hér á landi
sem vinnur sérstaklega að heilbrigði jarðar eða
umhverfismálum. Ljóst þykir að umhverfisváin er
okkar stærsta heilbrigðisvandamál í nútíð og framtíð
og því má spyrja hvort ekki sé tímabært og í raun
nauðsynlegt og ábyrgt af hjúkrunarfræðingum að
stofna fagdeild um heilbrigði jarðar. „Jörðin þarfnast
hjúkrunar.“ (Potter, 2019, bls. 206).
Huffling, K. (2019). Building a
global movement for health: Nurse
leadership on climate change.
Creative Nursing, 25(3), 191-194.
doi: 10.1891/1078-4535.25.3.191.
Potter, T. (2019). Planetary health:
The next frontier in nursing
education. Creative Nursing,
25(3), 201-207. doi: 10.1891/1078-
4535.25.3.201.
Wabnitz, K.J., Gabrysch, S., Guinto,
R., Haines, A., Herrmann, M.,
Howard, C., Potter, T., Prescott,
S.L., Redvers, N. (2020). A pledge
for planetary health to unite health
professionals in the Anthropocene.
Lancet, 396(10261), 1471-1473.
doi: 10.1016/S0140-6736(20)32039-
0. Epub 2020 Sep 30.
HEIMILDIR
Hvítagullfjallið ofar öllu
Ljós landsins.
Það fer og skuggarnir verða.
Sjónarsviptir erum við á Íslandseyjunni.
Við í heiminum.
Á förum
frá okkur
frá sjálfum sér sjálfum.
Það gleymdist að hann er úr vatni gerður
að hann leysist upp í það
og flæðir yfir veg allrar veraldar.
Ekki í hefndarskyni.
Það er bara engin leið önnur en þessi
sem við hröktum hann á.
Við Misindismenn.
Við Óvitar
sem köllum okkur þó homo sapiens.
Og Stephen Hawking sendi þau skilaboð
úr fangelsi líkamans
að við getum, ólíkt dýrunum, náð utanum alheiminn.
Við vitibornu skiljum þá hamfarahlýnun á jörðinni
en við látum ósköpin yfir ganga
Börnin og barnabörnin. Krúttin á facebook.
Hvað verður um þeirra krútt og þeirra krúttkrútt?
Er okkur alveg sama?
SAMA sem hroðgræðgi
dáðleysi
ár fram af ári.
mann fram af manni.
Jökullinn verður enginn að sér gengnum, enginn,
ekki nokkur
hann verður skrattakollur, kollóttur
fjall með framliðnum fjöllum
ekki ísfjallið brakandi bjart.
Svo steindrepst heimsins hvítasti kroppur og við tekur ótínt grjót.
SJÓNARSVIPTIR 1
(Steinunn Sigurðardóttir, Dimmumót, 2019, bls. 27-28)