Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 63

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 63
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 63 Boneco lofthreinsitæki Verðlaunuð fyrir hönnun og virkni og taka lítið gólfpláss. Öflug en hljóðlát virkni. Stórar HEPA og VOC kolasíur eyða vírusum, bakteríum og fjarlægja 99,99% af ofnæmisvökum. VOC kolasían dregur úr lykt og bindur rokgjörn efni, eiturefni og ýmsar gastegundir s.s brennisteinsdíoxíð og formalín (e.formaldehyde). Hreinsa allt að 300 m³/klst. Verð frá 44.750 kr. Boneco rakatæki Einföld og þægileg rakatæki til að viðhalda réttu rakastigi á heimili og skrifstofu. Möguleiki að fá rakatæki með innbyggðum rakamæli sem viðheldur sjálfkrafa réttu rakastigi. Allt yfirborð og plast sem kemst í snertingu við vatn er sérstaklega bakteríu- og veiruvarið. Verð frá 6.950 kr. Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) getur andrúmsloftið innandyra verið hundraðfalt verra en utandyra. Flestir verja um 90% af tíma sínum innandyra, þar af 60% inn á heimili sínu og þá helst í svefnherberginu. Við ættum því að gæta vel að gæðum andrúmsloftsins heima hjá okkur, sérstaklega í ljósi þess mikilvægis að fá góðan nætursvefn. Æskilegt rakastig innanhúss er á milli 40-60% eftir aðstæðum. Rakastig í upphituðum húsum er oft of lágt. Rétt rakamettun dregur einnig úr örverum og ofnæmisvökum í lofti. Eirberg Stórhöfða 25 og Kringlunni 1. hæð • Sími 569 3100 • eirberg.is Airfree lofthreinsitæki Margverðlaunuð lofthreinsitæki sem eyða 99,99% af örverum og ofnæmisvökum úr andrúmsloftinu. Eyða einnig lykt og gæludýraflösu. Hljóðlaus og sjálfhreinsandi. Hönnuð fyrir mismunandi stór rými, 16-60 m2. Verð frá 23.750 kr. Hvernig virkar Airfree? Lofthreinsitækin draga verulega úr örverum í andrúmsloftinu með því að brenna þær. Óhreint loft sogast hljóðlaust inn í tækið með varmaburði og eyðist í 200 gráðu heitum keramikkjarna þess. Þær lífrænu agnir sem valda ólykt eyðast einnig í kjarna Airfree. Þetta ferli er algjörlega hljóðlaust, krefst ekki viðhalds og hefur verið sannreynt í fjölmörgum rannsóknum. Thermodynamic Sterilising System (TSS®) 99,99% af örverum eyðast í 200°C heitum keramikkjarna Frjókorn Ofnæmisvakar frá rykmaurum Bakteríur Vírusar Gæludýraflasa Tóbakslykt Myglusveppagró Lykt Óson Heilsuhorn Andardrátturinn er öflugt ,,tæki” sem við höfum og getum notað til þess að virkja slökunarviðbragð líkamans. Djúpur, hægur andrardráttur gefur líkamanum merki um að allt sé í lagi; það slaknar á vöðvum og streituviðbrögð líkamans virkjast ekki. Öndunaræfing sem losar um spennu Kviðaröndun (þindaröndun,) eða slökunaröndun eykur súrefnisupptöku líkamans og það teygist á vöðvaþráðum sem gefa líkama og huga merki um að slaka á. Öndunaræfing Byrjaðu á því að koma þér fyrir í góðri sitjandi stöðu, lokaðu augunum. Beindu athyglinni inn á við og að andardrættinum. Skynjaðu andardráttinn og taktu eftir eftirfarandi atriðum: Ertu að anda hægt eða hratt? Andar þú grunnt eða djúpt? Er hver andardrátturinn langur eða stuttur? Hvaða hlutar bringu og kviðar hreyfast þegar þú andar? Byrjaðu nú að anda meðvitað og dýpkaðu öndunina. Andaðu inn og út um nef eða inn um nef og út um munn. Andaðu djúpt að þér og andaðu svo hægt og rólega frá þér; tæmdu allt loft út. Settu hönd á kvið og finndu hvernig kviðurinn þenst út eins og blaðra við innöndun og á útöndun fellur hann niður. Haltu áfram að fylgjast með andardrættinum og hvernig kviðurinn hreyfist með; þenst út á innöndun, fellur niður á útöndun. Á sama tíma skaltu gefa eftir og slaka á allri spennu í líkamanum. Umsjón: Kristín Rósa Ármannsdóttir, hjúkrunarfræðingur og jógakennarir KOSTIR KVIÐARÖNDUNAR -losar um spennu -dýpkar slökun -eykur tilfinngastjórn -eykur skýrleika hugar -eykur einbeitingu -færir súrefni til fruma -eflir heilsu -bætir svefn Gefðu þér tíma daglega til að virkja slökunar- viðbragðið, það mun með tímanum skila þér jákvæðum breytingum. Gott er að gera þessa öndunaræfingu alltaf á sama stað og á sama tíma dagsins, ef það er hægt. Æskilegt er að vera í rólegu og friðsælu umhverfi og æfa öndunina í 5-10 mínútur á dag. Auka svo tímann hægt og rólega upp í 20 mínútur á dag. Slökunaröndun er hægt að gera hvar og hvenær sem er, í amstri dagsins þegar þú finnur þig spennast upp og streitan er á ná tökum á þér. Það getur gerst í vinnunni, í röðinni í Bónus eða í bílnum á rauðu ljósi. Taktu þá nokkra langa og djúpa andardrætti, það er öflug og einföld leið gegn streitu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.