Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 16
16 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 97. árg. 2021
og lyfjafræði svæfingalyfja. Á síðustu önn námsins vinna
nemendur lokaverkefni í gjörgæsluhjúkrun. Hægt er
að sækja um MS-nám í gjörgæsluhjúkrun tvisvar á ári,
eins og þegar sótt er um MS-nám í hjúkrunarfræði.
Aðsóknin hefur verið góð og ljóst er að mikill áhugi er
hjá hjúkrunarfræðingum á Íslandi að sækja sér menntun
í gjörgæsluhjúkrun. Gjörgæsludeildir Landspítala
í Fossvogi, á Hringbraut og nýburagjörgæslu bjóða
hjúkrunarfræðingum, sem starfa á gjörgæsludeildunum,
klínískt starfsnám samhliða MS-gjörgæsluhjúkrunarnámi
annað hvert ár. Klínískt starfsnám hefst haustið 2021
og lýkur vorið 2023, í náminu er mikil áhersla lögð
á nýtingu rannsókna,“ útskýrir Rannveig. Hún bætir
við að faghópurinn verði mikilvægur farvegur fyrir
hjúkrunarfræðinga sem eru að ljúka meistaranámi þar
sem þeir fá svigrúm og utanumhald til þess að efla
hjúkrun á gjörgæsludeildum Landspítala.
Nýir leiðarvísar fyrir sjúklinga og aðstandendur
Rannveig segir frá metnaðarfullri útgáfu á leiðarvísi
fyrir sjúklinga og aðstandendur á gjörgæsludeild sem
kom út núna í júní. Leiðarvísirinn er þýðing á efni frá
bresku góðgerðarsamtökunum ICUsteps (icusteps.
com) og verður boðinn aðstandendum og sjúklingum
á gjörgæslu, ásamt því að birtast í íslenskri þýðingu á
vefsíðu icusteps.com. Í leiðarvísinum eru upplýsingar um
dvöl á gjörgæslu, og ráðgjöf og upplýsingar um meðferð
og bataferli á legudeild, eftir útskrift af gjörgæsludeild, og
eftir að heim er komið. Jafnframt var gefinn út bæklingur
fyrir börn sem heimsækja aðstandanda á gjörgæslu en sá
bæklingur er einnig ættaður frá ICUsteps.
Öflugur hópur hjúkrunarfræðinga að bætast í
hóp gjörgæsluhjúkrunarfræðinga
Á vorönn 2021 útskrifuðust, eins og fyrr segir, níu
hjúkrunarfræðingar með meistaragráðu í gjörgæslu-
hjúkrun frá hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Lokaverkefni hjúkrunarfræðinganna eru fjölbreytt en
eiga það sameiginlegt að vera miðuð að þörfum sjúklinga
og aðstandenda á gjörgæsludeild og tengjast því beint
klínískri gjörgæsluhjúkrun. Hér til hliðar eru heiti
lokaverkefnanna, ásamt nöfnum hjúkrunarfræðinganna.
„Markmiðið er að bæta
þjónustu við fjölskyldur
þeirra sem liggja á
gjörgæsludeild og efla
hjúkrunarfræðinga í
að sinna fjölskyldum
sjúklinga.“
Viðtal