Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 30

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 30
30 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 97. árg. 2021 500 metra í sjónum og vorum þá um 15-20 mínútur ofan í. Við féllum alveg kylliflatar fyrir sjósundinu og vorum ákáfar í að bera út boðskapinn um hvað sjósund væri æðislegt. Fyrr en varir var kominn góður hópur úr vinnunni og þeim hefur öllum fundist þetta æðislegt. Tvær úr hópnum voru aðeins byrjaðar að prufa köld böð og sjósund en annars voru þetta allt konur sem höfðu aldrei prófað sjósund áður. Hvernig gengur þetta fyrir sig þegar þið hittist í Nauthólsvíkinni? Við byrjum alltaf á að fara í heita pottinn í svona korter, svo förum við í sjóinn. Oft förum við fyrst í lónið, sérstaklega yfir vetrartímann þegar sjórinn er í kringum núll gráður, svo förum við aftur í pottinn og svo í sjóinn. Hvað við erum lengi er mjög misjafnt, það fer eftir hitastigi, dagsforminu og fleiru. Sjósundið datt aðeins niður í heimsfaraldrinum en við erum byrjaðar að venja okkur við aftur. Áður en covid skall á miðaði ég við 4 gráður; synti þá að kaðli, það eru um það bil 250 metrar. En ef sjórinn er heitari, í kringum 10 gráður, er ég oft 15-20 mínútur í sjónum og stundum lengur, það fer allt eftir veðrinum. Ef það er sól og blíða er ég lengur og ef það er háflóð og stórstreymt er ég líka lengur ofan í því þá er svo mikil „mýkt“ í sjónum og maður finnur svo vel fyrir orkunni í hafinu miðað við þegar það er háfjara. Hvort vegur meira félagsskapurinn eða sundið í sjónum? Ætli það sé ekki nokkuð jafnt. Fyrir mig er það öll orkan sem ég fæ úr hafinu. Ég hef líka prófað að synda í vötnum en mér finnst það ekki sama upplifunin. Ég hef heldur engan áhuga NÖFN HAFMEYJANNA Harpa Sóley Snorradóttir Ragna Dóra Rúnarsdóttir Helga Gunnarsdóttir Ásta Ingibjörg Þorsteinsdóttir Halla Grétarsdóttir Kristín Sif Árnadóttir Hrönn Stefánsdóttir Sigrún Þorsteinsdóttir Sjósund Allar nema Ásta starfa á deild 11B, dag- og göngudeild krabbameinslækninga. Ásta er á 11EG sem er legudeild blóð- og krabbameinslækninga. „Sumar okkar taka öndunaræfingar og vilja ekki láta tala við sig á meðan þær eru að einbeita sér.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.