Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 76
76 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 97. árg. 2021
áföllum oftar í eigin garð, en hjá þeim sem höfðu upplifað eitt
áfall beindist reiðin meira að öðrum (Hagenaars o.fl., 2011).
Úrvinnsla áfalla
Afleiðingar sálrænna áfalla eru einstaklingsbundnar þar sem
fólk tekst á við þau á margbreytilegan hátt. Talið er að ýmsir
þættir geti stuðlað að því að fólk nái frekar að vinna sig út úr
áföllum. Til að mynda hefur lífsánægja jákvæð áhrif á andlega
sem líkamlega heilsu. Að sama skapi eykur lítil lífsánægja
hættuna á þunglyndi, kvíða og á sállíkamlegum einkennum,
s.s. ófullnægjandi svefni, takmarkaðri virkni, verkjum
og slæmri líkamlegri heilsu almennt (Strine o.fl., 2008).
Rannsóknir á tengslum milli ákveðinna persónueinkenna
og þroska eftir áfall hafa á hinn bóginn sýnt að seigla virðist
hjálpa fólki að ná sér aftur, eftir mjög streituvaldandi atburði
í lífinu (Beutel o.fl., 2017; Fletcher og Sarkar, 2013). Jákvæð
persónueinkenni, eins og hreinskilni og að kunna góð
bjargráð, eru einnig eiginleikar þeirra sem ná frekar þroska
eftir áföll (Mattson o.fl., 2018). Samvinnuþýði, samviskusemi,
mannblendni, víðsýni og það að vera opinn og tilbúinn að
móttaka félagslegan stuðning hefur forspárgildi fyrir þroska
eftir áfall (Owens, 2016; Staugaard o.fl., 2015).
Íslensk rannsókn framkvæmd með djúpviðtölum við 12
einstaklinga um hvernig þeir lærðu að lifa með áföllum og
ná vexti í kjölfar þeirra sýnir að úrvinnsla áfallanna hjálpaði
þeim mest. Þar vó þyngst að fá tækifæri til að greina frá líðan
sinni eftir áfall við fagmann sem sýndi þeim umhyggju, hlýju,
stuðning og traust (Hulda Sædís Bryngeirsdóttir o.fl., 2016).
Þessar niðurstöður sýna mikilvægi þess að fólk fái hjálp við
úrvinnslu sálrænna áfalla til að koma í veg fyrir alvarlegan
heilsubrest.
Dáleiðslumeðferð við úrvinnslu áfalla
Úrvinnsla áfalla er mikilvæg því hún getur leitt til andlegs
vaxtar og þroska (Jiang o.fl., 2017). Hægt er að leita ýmissa
leiða við að vinna úr áföllum og er dáleiðslumeðferð ein
þeirra. Við dáleiðslu verður breyting á vitundarástandi
einstaklingsins og taugavirkni, þar sem einbeiting og
tilfinningastjórnun eykst og sjálfsmeðvitundin minnkar (Jiang
o.fl., 2017). Í þessu hugarástandi opnast fyrir undirvitundina
þar sem hægt er að vinna með tilfinningar og reynslu
einstaklingsins (Williamson, 2019).
Fræðileg samantekt O’Toole og félaga (2016), þar sem
skoðaðar voru sex rannsóknir meðal 391 þátttakenda,
sýndi að dáleiðsla er áhrifarík meðferð við afleiðingum
sálrænna áfalla. Í dáleiðslu er hægt að kalla fram minningar
af atburðum sem valdið hafa áfalli sem skjólstæðingur hefur
bælt niður. Unnið er með tilfinningarnar sem tengjast áfallinu
og einstaklingnum hjálpað að hafa stjórn á aðstæðum til að
draga úr kvíða (O’Toole o.fl., 2016).
Dáleiðsla hefur reynst árangursrík við mörgum líkamlegum
og andlegum einkennum sem geta verið afleiðingar
sálrænna áfalla, svo sem verkjum, iðraólgu, kvíða,
þunglyndi, geðsjúkdómum og sállíkamlegum einkennum
(Bowker og Dorstyn, 2016; Cowen, 2016; Taylor og Genkov,
2019; Thompson o.fl., 2019). Dáleiðsla hefur einnig reynst
vel við spennuhöfuðverk og mígreni sem eru algengir
fylgifiskar langvarandi streitu (Ahmadi o.fl., 2018). Hún er
góð til að vinna með fælni, auka sjálfstraust og til að bæta
frammistöðu á ýmsum sviðum en það er afar mikilvægt
við úrvinnslu áfalla (Yager, 2009). Íslensk viðtalsrannsókn
Ólafar Unnar Sigurðardóttur (2008), meðal sex einstaklinga
sem fengu dáleiðslumeðferð við alvarlegu þunglyndi og
sjálfsvígshugsunum, sýndi einnig að dáleiðslumeðferð er
gagnleg leið til að bæta andlega líðan. Þátttakendur lýstu
meiri kjarki og tilfinningastjórn, betri hvíldartilfinningu,
auknum innri styrk, rósemi og sjálfsöryggi. Þeir upplifðu
einnig að þeir næðu að sjá hlutina frá fleiri sjónarhornum sem
leiddi til betri skilnings.
Að hafa trú á sjálfum sér skiptir höfuðmáli ef ætlunin er
að ná árangri í því sem menn taka sér fyrir hendur. Líkur á
árangri aukast ef fólk trúir því að hægt sé að dáleiða það
(Hunter, 2015). Faglegur stuðningur meðferðaraðilans í formi
umhyggju og trausts skiptir einnig miklu máli til að ná vexti
í kjölfar áfalls (Hulda Sædís Bryngeirsdóttur o.fl., 2016; Ólöf
Unnur Sigurðardóttir, 2008).
Erlendar rannsóknir hafa sýnt að dáleiðslumeðferð hefur
reynst vel við ýmsum heilsufarskvillum en mikill skortur er
á íslenskum rannsóknum á dáleiðumeðferð. Dáleiðsla hefur
lítið verið notuð innan heilbrigðiskerfisins hér á landi en þar
sem dáleiðsla er nú viðurkennd hjúkrunarmeðferð samkvæmt
skráningarkerfi Alþjóðaráðs hjúkrunarfræðinga (ICN, 2019)
er mikilvægt að gera frekari rannsóknir innan hjúkrunar.
Vonin er að hægt verði að bjóða upp á dáleiðslumeðferð í
auknum mæli í áfallamiðaðri þjónustu og er aukin þekking á
viðfangsefninu forsenda fyrir eflingu slíkrar þjónustu. Þetta
er fyrsta íslenska eigindlega rannsóknin á dáleiðslu sem
unnin er meðal hjúkrunarfræðinga. Einnig er þetta fyrsta
íslenska rannsóknin þar sem sérstaklega er skoðuð reynslan af
úrvinnslu sálrænna áfalla með dáleiðslumeðferð.
Tilgangur rannsóknar og rannsóknarspurning
Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða reynslu fólks af
dáleiðslumeðferð við afleiðingum sálrænna áfalla, með það
að markmiði að auka þekkingu og dýpka skilning á því.
Rannsóknarspurningin var: Hver er reynsla fólks af
dáleiðslumeðferð við afleiðingum sálrænna áfalla?
Til að svara rannsóknarspurningunni var aðferð Vancouvers-
skólans innan fyrirbærafræðinnar notuð því hún hentar vel
fyrir tilgang og markmið rannsóknarinnar. Aðferðinni er ætlað
að bæta mannlega þjónustu, t.d. heilbrigðisþjónustu, og
gengur út frá því að hver og einn sjái veröldina með sínum
augum og sinni reynslu og eigin túlkun á þeirri reynslu.
Markmiðið er að rannsakandinn fái fram góða heildræna
mynd af reynslu þátttakenda. Áherslan er á að dýpka skilning
og auka þekkingu á mannlegri reynslu. Til að ná fram góðri
heildrænni mynd þarf rannsakandinn að mynda ákveðin
tengsl við þátttakendur, liggja yfir gögnunum og verja miklum
tíma í gagnagreiningu. Aðferðin byggist á 12 þrepa ferli (tafla
1) sem unnið er eftir og meðan á rannsókninni stendur er sjö
þrepa vitrænu ferli fylgt (mynd 1) síendurtekið í hverju þessara
12 þrepa (Sigríður Halldórsdóttir, 2016).
AÐFERÐ
„Þetta breytti lífi mínu“