Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 50
50 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 97. árg. 2021
Heilbrigði jarðar
Ég heiti að helga líf mitt því að þjóna og vernda
mannkyn og náttúruna sem heilbrigði manna veltur á.
Ég mun setja heilbrigði fólks, samfélaga og jarðarinnar
í forgang og bera virðingu fyrir mannslífum og
fjölbreyttu lífi á jörðinni.
Ég mun stunda fag mitt samviskusamlega og með
virðingu fyrir og í samræmi við góða starfshætti með
tilliti til heilbrigðis jarðarinnar.
Til að skaða ekki mun ég virða sjálfræði og reisn
allra jarðarbúa við aðlögun nýrra leiða með það að
markmiði að bæta heilbrigði og fyrirbyggja skaða á
mannkyni og jörð.
Ég mun hafa í heiðri og virða það traust sem mér
er sýnt og nýta þetta traust til að stuðla að bættri
þekkingu og móta gildi og hegðun sem styðja við
heilbrigði mannkyns og jarðar.
Ég mun leggja mig fram um að auka skilning minn á
þeim áhrifum sem bein, ómeðvituð og kerfisbundin
hlutdrægni hefur á sjúklinga mína, samfélög og
jörðina, til þess að auka vitund mína til að þjóna.
Ég mun kappkosta að koma á jöfnuði og réttlæti
með því að vekja athygli á umhverfis-, félags- og
skipulagsmálum, sem eru mælikvarðar heilbrigðis, og
um leið standa vörð um þá náttúru sem er undirstaða
lífs á jörðu fyrir komandi kynslóðir.
Ég mun viðurkenna og virða ólíka uppsprettu
þekkingar og kunnáttu hvað heilbrigði einstaklinga,
samfélaga og jarðar varðar, svo sem hefðbundna
kunnáttu frumbyggja, en um leið vinna gegn
útbreiðslu rangra upplýsinga sem grafa undan
heilbrigði jarðar.
Ég mun auka við og deila þekkingu minni í þágu
samfélags og jarðarinnar; ég mun einnig markvisst
efla þverfaglegar, heildrænar aðgerðir til að viðhalda
heilbrigði einstaklinga, samfélaga og jarðar.
Ég mun sinna eigin heilsu, velferð og atgervi til þess að
geta annast og þjónað samfélaginu eftir bestu getu.
Ég mun ætíð leitast við að vera fyrirmynd sjúklinga
minna og samfélags með því að fylgja meginreglum
sem stuðla að heilbrigði jarðar og draga úr
loftlagsáhrifum.
Ég mun ekki beita þekkingu minni til að brjóta á
mannréttindum og borgaralegu frelsi, jafnvel þótt
mér sé ógnað; vitandi það að réttur fólks til heilsu er
undirstaða heilbrigðis jarðar.
Með því að sverja þennan eið hef ég skuldbundið mig
til að fylgja framtíðarsýn um persónulegt og félagslegt
heilbrigði og heilbrigði jarðar, sem mun gera hvers
kyns lífi kleift að dafna á jörðinni, í nútíð og framtíð.
Ég legg einlæglega og óbundin/n heiður minn að veði
til að uppfylla þennan eið.
(Wabnitz o.fl., 2020, bls. 1472).
Eiður
heilbrigðisstarfsfólks
um að varðveita
heilbrigði jarðar á
mannöld