Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 11
2. tbl. 97. árg. 2021 | Tímarit hjúkrunarfræðinga 11
en við fengum ný verkefni og það er því alltaf nóg
að gera,“ útskýrir hún hress í bragði og bætir við að
í Mýrdalshreppi sé næstum helmingur íbúanna af
erlendum uppruna og það sé skemmtileg glíma að sinna
þeim þörfum sem það hafi í för með sér.
Kvíðir því ekki að hætta að vinna
Helga verður 62 ára í sumar og Sigurgeir verður 68
ára, það verða því breytingar á þeirra högum á næstu
árum þegar þau setjast í helgan stein, hætta að vinna og
fara að njóta efri áranna. Helga segist nýlega hafa lokið
námskeiði í hjúkrun aldraðra. „Það rann upp fyrir mér á
einum fyrirlestrinum að ég er nánast á þessum aldri sem
verið var að fjalla um,“ segir hún og brosir út í annað. „Ég
kvíði því ekki að hætta að vinna og held raunar að það
hljóti að vera gott að geta algjörlega ráðið tíma sínum
sjálfur. Mér finnst líklegt að við munum halda tengslum
við héraðið svo lengi sem líf og heilsa endist. Skógrækt og
ýmis búsýsla á jörðinni okkar í Helludal í Bláskógabyggð
fær meira rými þegar við hættum að vinna. Ég reyni svo
örugglega að halda taktinum í mínu lífi með sundi, grúski
og gönguferðum. Það er tilhlökkunarefni að geta varið
Helga með sextíu rauðar
rósir á 60 ára afmæli sínu,
stödd í landi þeirra hjóna í
Helludal í Biskupstungum í
Bláskógabyggð.
meiri tíma með afkomendum og vonandi gefast tækifæri
til að nema nýjar lendur í víðum skilningi þess orðs,“
segir Helga sátt við guð og menn.
Oddviti og varamaður á Alþingi
Helga hefur mikinn áhuga á samfélagsmálum og fylgist
með öllu því helsta, sem er að gerast í landsmálunum og
sveitarstjórnarmálum. Hún var oddviti Mýrdalshrepps
og sat sem varamaður á Alþingi skamma hríð á sínum
tíma. „Ég hef áhuga á samfélagsmálum nær og fjær, hef
til að mynda setið í stjórn Háskólafélags Suðurlands
frá upphafi og sit þar enn. Ég var í meira en áratug
varamaður í vísindasiðanefnd og kom talsvert að vinnu
þar. Það eru fáar nefndir í Mýrdalshreppi sem ég hef
ekki setið í. Það var mikil reynsla og lærdómsríkt að
sitja í sveitarstjórn og gegna stöðu oddvita. Mér fannst
það á við gott nám og það reyndi á einurð og ýmsa
persónuleikaþætti mína. Ég gaf kost á mér af því ég hafði
áhuga á uppbyggingu í hreppnum, ekki síst sá ég þörf á
að byggja upp íþróttamannvirki, sundlaug og íþróttahús.
Við réðumst í það verkefni með ágætum árangri,“ segir
Helga stolt.
Viðtal