Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 84
Fjölskylduhjúkrun bætir samskipti innan fjölskyldu, hefur
áhrif á gæði hjúkrunar og verkferla á sjúkradeildum,
eykur samvinnu við fjölskyldur, leiðir til styttri innlagna
og getur jafnvel komið í veg fyrir endurinnlagnir. Viðhorf
hjúkrunarfræðinga geta haft áhrif á það hvort og hvernig þeir
veita fjölskylduhjúkrun. Tilgangur rannsóknarinnar var að
meta og dýpka skilning á viðhorfum hjúkrunarfræðinga og
ljósmæðra á Sjúkrahúsinu á Akureyri til fjölskylduhjúkrunar
fyrir og á meðan á innleiðingu á Calgary fjölskylduhjúkrunar
stóð.
Rannsóknin var íhlutunarrannsókn án samanburðarhóps. Í
megindlega hlutanum svöruðu þátttakendur spurningalista
um viðhorf hjúkrunarfræðinga til mikilvægis fjölskyldna
í hjúkrun (FINC-NA – Families’ Importance in Nursing
Care – Nurses’ Attitudes) ásamt bakgrunnsspurningum.
Rannsóknargögnum og bakgrunnsupplýsingum var safnað
hjá öllum hjúkrunarfræðingum og ljósmæðrum á SAk á
tveimur tímabilum. Í megindlega hlutanum var unnið með
gögn hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á deildum þar sem
fjölskylduhjúkrun var innleidd (n=145). Á tíma 1 svöruðu 133
þátttakendur (92%) og á tíma 2 svöruðu 132 (89%). Úrvinnsla
megindlegra gagna fór fram í SPSS. Í eigindlega hlutanum
svöruðu þátttakendur þremur opnum spurningum skriflega.
Af öllu þýðinu (N=205) svöruðu 87 þátttakendur skriflega
spurningum við báðar fyrirlagnir sem voru greindar og
flokkaðar með aðferðum innihaldsgreiningar.
Viðhorf hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á SAk til fjölskyldu-
hjúkrunar var almennt jákvætt. Það breyttist ekki í
innleiðingarferlinu. Þátttakendur með hærra menntunarstig
og lengri starfsreynslu litu síður á fjölskyldu sem byrði
(p<0,05). Þátttakendur sem töldu að það væri almenn stefna
að hlúa að fjölskyldum á sinni deild höfðu jákvæðara viðhorf
(p<0,05). Þátttakendur töldu helsta ávinning og hvata
fjölskylduhjúkrunar stuðla að auknum gæðum hjúkrunar.
En hins vegar töldu þeir helstu hindranir í því að veita
fjölskylduhjúkrun vera álagsþættir í starfi, starfsumhverfi
og vinnuskipulagi.
Það er mikilvægt að styðja áfram við jákvæðviðhorf
hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á SAk til fjölskyldu-
hjúkrunar. Það hefur sýnt sig að jákvætt viðhorf stuðlar
að árangursríkari fjölskylduhjúkrun til sjúklinga og
aðstandenda.
Tilgangur
ÚTDRÁTTUR
Aðferð
Niðurstöður
Lykilorð:
Fjölskylduhjúkrun – Viðhorf hjúkrunarfræðinga –
Calgary fjölskyldumats- og meðferðarlíkanið
Ályktun
HAGNÝTING
RANNSÓKNARNIÐURSTAÐNA
„Hvers vegna ættir þú að lesa þessa grein?“
Nýjungar: Fyrstu megindlegu og eigindlegu
niðurstöður um viðhorf hjúkrunarfræðinga og
ljósmæðra til fjölskylduhjúkrunar á íslensku
sjúkrahúsi fyrir utan höfuðborgarsvæðið.
Hagnýting: Niðurstöðurnar bæta við þekkingu
sem mun nýtast í áframhaldandi þróun og
innleiðingu Calgary fjölskylduhjúkrunar sem
meðferðarúrræðis til að bæta gæði hjúkrunar á
landsbyggðinni.
Þekking: Þekking á viðhorfum
hjúkrunarfræðinga til fjölskylduhjúkrunar
er mikilvæg því viðhorf geta haft áhrif á
gæði heilbrigðisþjónustu sem sjúklingum og
fjölskyldum þeirra er veitt.
Áhrif á störf hjúkrunarfræðinga:
Niðurstöður nýtast í að skapa starfsumhverfi
sem styður hjúkrunarfræðinga í klínískum
störfum þeirra.
Viðhorf til fjölskylduhjúkrunar á SAk