Tímarit hjúkrunarfræðinga - 2021, Blaðsíða 24
24 Tímarit hjúkrunarfræðinga | 2. tbl. 97. árg. 2021
Hvernig geta hjúkrunarfræðingar nýtt sér
handleiðslu?
,,Það er lærdómstækifæri að vera í sambandi við
handleiðara og fá handleiðslu varðandi hvar þú
ert staddur með sjálfan þig, varðandi fagþekkingu,
samskipti við samstarfsfólk og sjúklinga og hvert þú
vilt stefna. Þetta er lærdómsvegur. Landspítalinn
er stór vinnustaður þar sem alltaf má búast við
miklum hraða og streituvekjandi aðstæðum sem þarf
að mæta út frá faglegum forsendum og ákveðnum
kröfum. Handleiðslan þarf að miðast við það, sem
þýðir ákveðinn sveigjanleika, og að gerðir séu
samningar fyrir lengri eða styttri tíma, eftir þörfum
þeirra sem vinna á spítalanum. Það getur til að
mynda oft verið erfitt fyrir starfsfólk, að komast frá
vegna aðstæðna í vinnunni. Þó er mikilvægt að leggja
áherslu á að fólk setji handleiðslutíma í sem mestan
forgang og fái til þess leyfi frá yfirmönnum.“
Hvernig komast hjúkrunarfræðingar í
handleiðslu?
,,Stuðnings og ráðgjafateymi Landspítalans hefur
lengi verið til og tekur á móti beiðnum frá starfsfólki
spítalans. Teymið er þverfaglegt og hefur á að skipa
öflugu fagfólki, en það hafa verið mjög fá stöðugildi
í teyminu, miðað við allan þann fjölda starfsmanna
sem vinnur á spítalanum. Síðustu ár hefur þó
verið aukinn skilingur af hálfu stjórnenda á því hve
handleiðsla er mikilvægur hluti af starfinu. Reynslan
hefur sýnt sig að handleiðsla skiptir máli fyrir
starfsfólk til að takast á krefjandi verkefni og koma í
,,Það sem handleiðsla felur í sér er að
þú ert alltaf að skoða sjálfsímyndina
þína. Þú ert að skoða hvaðan þú
kemur og skoða hliðstæð ferli,
sem eiga sér oft orsakir og rætur í
fortíðinni, og eru að keyra einhver
viðbrögð sem þú ert að sýna í dag.“
Handleiðslufélags Íslands var stofnað árið 2000
og hefur félagið staðið fyrir fræðslu, umræðu og
þróun handleiðslu í gegnum tíðina og á sinn þátt í að
handleiðslunám á háskólastigi hefur reglulega verið í
boði. Til að komast í námið þarf maður að hafa ákveðinn
náms- og starfsgrunn, hafa verið í handleiðslu og
hóphandleiðslu og það er einnig æskilegt að hafa farið í
gegnum sína eigin samtalsmeðferð. Mikilvægt er að hafa
tilskilið nám og reynslu en einnig að þekkja sjálfan sig og
sín mörk til að geta hjálpað öðrum.
veg fyrir kulnun í starfi. Í dag getur fólk sótt sjálft um
handleiðslu, það er opinn aðgangur að stuðnings-
og ráðgjafarteymi í gegnum heimasíðu spítalans en
oft eru yfirmenn til aðstoðar og senda inn beiðni til
teymisstjóra fyrir sitt starfsfólk.“