Heilbrigt líf - 01.12.1949, Blaðsíða 18
um sjálfstæðum ríkjum. Sameiginlegu skilyrðin eru aðal-
lega þessi:
1. Félagið verður að vinna í anda Rauða kross hugmynd-
anna.
2. Félagið verður að vera viðurkennt af ríkisstjórn sinni
sem eina Rauða kross félagið í ríkinu.
3. Ríkið verður að ganga að Genéve-samningnum.
4. Félagið verður að fá viðurkenningu nefndarinnar í
Genéve.
5. Félagið má engan af landsmönnum sínum útiloka vegna
stjórnmálaskoðana, trúarskoðana eða kyriferðis.
Þetta sér nefndin um, að sé í lagi, og annast svo öll við-
skipti milli félaganna innbyrðis. En félögin ráða að öðru
leyti að mestu skipulagi sínu sjálf.
Það, sem óneitanlega er markvert, er það, að alþjóða-
félagsskapur, sem svo litlum böndum er bundinn um skipu-
lag, skuli í reyndinni hafa orðið einhver öflugasti alþjóða-
félagsskapur, sem veraldarsagan þekkir. Hið góða og
óeigingjarna, sameiginlega markmið virðist hafa þann
kynngikraft, að allar þjóðir heims telja sjálfsagt, undir
þessu merki, að hjálpa hver annarri og einstaklingarnir
hver öðrum, er á ríður, án tillits til þess, hvort er vinur
eða fjandmaður, hvítur maður eða svartur, kristinn eða
heiðingi. Allir eru bræður og systur, þar sem borið er um
merki Rauða krossins.
Þess skal getið, að árið 1919, eftir ófriðinn, er Miðveldin
og þeir, sem þeim fylgdu, voru alveg magnþrota, var, fyrir
forgöngu Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Italíu og
Japan, stofnað sérstakt samband Rauða kross félaga, er
nefnist: ,,The League of Red Cross“. Gengu flest hlut-
lausu ríkin og í þann félagsskap. Hefur hann varið ógrynni
fjár til bótar böli því, sem fram hefur komið eftir ófrið-
inn, drepsóttum, hungursneyð, hollustuóþrifum meðal
austurþjóðanna í Evrópu o. s. frv. Hefur „League“ aðal-
16
Heilbrigt líf