Heilbrigt líf - 01.12.1949, Blaðsíða 95
OFNÆMl.
Það er erfitt að lækna drykkjumenn, en þó má það tak-
ast. Margur hefur hætt áfengisneyzlu fyrir lífstíð og það
þótt hann væri djúpt sokkinn. En eitt tekst aldrei, og þaS
er að kenna ofdrykkjumanni að drekka í hófi. Alla ævi sína
verður hann ofnæmur fyrir áfengi, þannig, að fari hann
að neyta þess á ný, fellur hann fyrr en varir í gamlan far-
veg óhófsins. Þessu er líkt farið og um ofnæmi sumra
manna fyrir vissum fæðutegundum eða öðrum efnum. Sé
þeirra neytt, koma í ljós sjúkleg einkenni, sem hverfa aft-
ur og sýna sig ekki, meðan maðurinn forðast viðkomandi
efni.
II.
MEÐFERÐ.
Ofdrykkjan er erfið meðferðar. Eins og raunin er um
aðra þráláta sjúkdóma, rekur hér hver læknisaðferðin
aðra, án þess að nokkur hafi til þessa reynzt einhlít. Hlut-
verk allrar ofdrykkjumeðferðar er í höfuðdráttum endur-
uppeldi sjúklingsins. Drykkjuvanann og aðrar rótgrónar
venjur þarf að brjóta niður og byggja upp í þeirra stað
heilnæmari lífsvénjur. Slíkt enduruppeldi tekur ávallt
langan tíma, venjulega tvö til þrjú ár. Á þeim tíma er
sjúklingurinn að smálosna úr viðjum drykkjuvanans og
temja sér nýjar og hollari lífsvenjur. Meðan á þessu stend-
ur, liggur áfengis freistingin stöðugt í launsátri, tilbúin
að hremma bráð sína við fyrsta tækifæri. Flestir falla fyrir
henni aftur og aftur, og seinkar það bata, dregur meir og
meir á langinn.
FORTÖLUR.
Elzta og algengasta ráðið eru fortölur, og eru þær raunar
ætíð notaðar, hver sem tæknisaðferðin annars er. Sjúk-
Heilbrigt líf
93