Heilbrigt líf - 01.12.1949, Side 119
III. Uppeldisheimili.
Kappkostað er að hafa uppeldisheimilið sem minnst
frábrugðið venjulegu, barnmörgu heimili, þar sem börnin
fá vernd, fræðslu, starf, tómstundavinnu og leiki eftir því,
sem hæfilegt þykir, en ganga svo í venjulegan skóla í
nágrenninu.
Þess ber að gæta, að börnin eru mörg hver aðeins af-
brota- eða vandræðabörn svo lengi sem þau dvelja í heima-
húsum.
Mörg þeirra læknast jafnskjótt og þau komast undan
áhrifum foreldranna, en hætt er við, að sækja vilji í sama
horfið, ef þau eru fljótlega send heim aftur.
Stundum þarf að setja þessi börn í sérstaka skóla, en
þau eru þó ekki fleiri en svo, að varla myndi vera um
slíkt að ræða hér á landi.
IV. Upptökuheimili.
í öllum stærri bæjum eru upptökuheimili talin nauðsyn-
ieg, ekki aðeins til að veita viðtöku um stundarsakir af-
brotaunglingum og öðrum vandræðabörnum, heldur til að
taka við hvers konar börnum, sem af einhverjum orsökum
lenda á vegum bæjarfélagsins. Þar getur verið um að ræða
foreldralaus börn, sem bæjarfélagið þarf að taka að sér,
þar getur einnig verið um að ræða börn, sem taka þarf
í flýti af heimilum vegna illrar meðferðar, vanhirðu o. s.
frv., og dvelja þau á þessu heimili, þar til þeim er fundinn
varanlegur samastaður.
V. SálfræSileg rannsókn og rneðferö.
Það má segja, að þegar leita á orsakanna til margvís-
legra erfiðleika i uppeldi barna, þá sé þar svo margt
sinnið sem skinnið, og þarf þá oft að skyggnast djúpt til
að fá nokkurn botn. Þá þarf að grípa til nákvæmrar sál-
fræðilegrar rannsóknar, en slíkt er ekki á hvers manns
Heilbrigt líf
m