Heilbrigt líf - 01.12.1949, Blaðsíða 35
V. SJÚKRAFLUTNINGAR.
Eitt af áhugamálum RKÍ allt frá stofnun hans, hefur
verið sjúkraflutningar. Þegar hann hóf starf sitt, var í
notkun í Reykjavík ein sjúkrabifreið, sem bærinn átti.
Hafði hún bætt úr brýnustu þörfum að því er snerti sjúkra-
flutning innan bæjar og í næsta nágrenni hans, en meira
annaði hún ekki.
Stjórn RKÍ hófst þegar handa um undirbúning að út-
vegun sjúkrabifreiðar. Var safnað til hennar með merkja-
sölu í Reykjavik og Hafnarfirði á öskudaginn 1926. Söfn-
uðust um 3000.00 krónur. Sjúkrabifreið þessi kom svo til
iandsins í ágúst sama ár, og var farið að starfrækja hana
þá um haustið. Kom hún að góðum notum, einkum hvað
flutning á utanbæjarsjúklingum snerti. Síðan hefur RKl
haldið þessum sjúkraflutningum áfram og oftast annazt
þá að mestu eða öllu leyti einn víðast hvar á landinu.
Árið 1934 var keypt ný sjúkrabifreið, og næsta ár á eftir
var bætt við annarri. Á árinu 1945 voru keyptar tvær
vandaðar sjúkrabifreiðir frá Ameríku. Auk þess gaf am-
eríski Rauði krossinn RKl eina sams konar bifreið. Hafði
hann því eftir það um skeið 3 sjúkrabifreiðir í Reykjavík
til afnota. Til þess að skapa sér nokkra hugmynd um,
hversu umfangsmikil þessi starfsemi var, má geta þess,
að 1944 var samanlögð vegalengd sú, sem þessar 3 bifreiðir
fóru utanbæjar, 27466 kílómetrar. Fluttir voru það ár
með þeim 1999 sjúklingar. Lengstu vegalengdirnar, sem
þær fóru, voru þessar: Til Blönduóss, Hvammstanga, í
Þorskafjörð og til Víkur í Mýrdal.
Sumar RKÍ-deildirnar utan Reykjavíkur starfrækja
sjúkrabíla, t. d. Akureyrar-deildin frá því skömmu eftir
að hún var stofnuð. Á síðari árum hafa deildirnar á Sauð-
árkróki, Seyðisfirði og Isafirði eignazt sjúkrabifreiðir.
Rekstur sjúkrabifreiða RKl í Reykjavík hefur Slökkvi-
stöðin annazt frá byrjun og gert það með prýði.
Heilbrigt líf — 3
33