Heilbrigt líf - 01.12.1949, Síða 79
í hverju barni. Árið 1944 var talan komin niður í 1,8. Hjá
öðrum aldursflokkum barna minnkaði tannáta einnig tals-
vert. Neyzla sykurs, sætinda og fíns mjölmetis minnkaði
mjög á stríðsárunum og gerir Toverud ráð fyrir, að þess
vegna hafi tannátan minnkað.
í London gerði Mellanby o. fl. samanburð á tönnum 5
ára barna árið 1929 og 1943. Á þessu árabili höfðu tennur
barnanna batnað verulega, svo að minna var um tannátu
og aðra tanngalla. Mellanby gerir ráð fyrir, að þessar
framfarir stafi af betra fæði. Fátækum börnum hafði verið
séð fyrir mjólk, og smjörlíki hafði verið bætt með A- og
D-fjörvum og kalki bætt í brauðið. Auk þess hafði verið
séð um, að þungaðar konur fengu mjólk, lýsi og ávaxta-
safa. Þar að auki mun hafa verið lítið um sykur og sætindi
í Englandi á styrjaldarárunum, en þá hlið málsins virðist
Mellanby ekki hafa athugað. Verður því fróðlegt að sjá,
hvernig tönnum ensku barnanna reiðir af, þegar sykur
og annað ,,fínmeti“ fæst aftur hömlulaust.
I Ítalíu og í Bandaríkjunum hafa menn um allangt skeið
tekið eftir undarlegum tannlýtum, og var orsökin til þeirra
lengi vel hreinasta ráðgáta. Fyrst komu hvítir dílar eða
jafnvel krítarkennt hrúður á glerunginn. Síðar dökkna
þessir blettir, og verða tennurnar þá ljótar og flekkóttar.
Ef mikið kveður að þessum breytingum, eru þær til stórra
lýta. Auk þess er hætt við, að glerungurinn springi og
greiði þannig tannsjúkdómum götuna. Þó hefur komið á
daginn, að tennur með þessi lýti eru oft furðanlega lausar
við tannátu, og þar sem aðeins vottaði fyrir tanndílum,
var sá munur áberandi. Nú er vitað, að flúorsölt valda
þessum tanndílum og að þeir finnast eingöngu þar, sem
nokkuð er um fluor í neyzluvatni.
Árið 1928 var rannsókn gerð á vatnsbólinu í Bauxite
í Arkansas í Bandaríkjunum, en í þessum bæ hafði borið
sérlega mikið á tanndílum. Mikið var um fluor í vatninu,
Heilbrigt líf
77