Heilbrigt líf - 01.12.1949, Blaðsíða 97
hann upp með hagnýtu starfi og öðrum hollum lifnaðar-
háttum. Aðalgalli hælisvistar er sá, að sjúklingurinn er
tekinn úr lífsstarfi sínu og öðru eðlilegu umhverfi og á
eftir að venjast því á ný, er heim kemur. Þá mæta honum
oft örðugleikar, sem verða honum að falli.
Fortölur, dáleiðsla og hælisvist eru sálrænar lækninga-
aðferðir. Fleiri slíkar aðferðir eru til, sem beitt hefur verið
við ofdrykkjumenn, t. d. sálkönnunaraðferð Freuds, en
út í þær skal ekki nánar farið hér. Lyf margra tegunda
hafa verið reynd á ýmsum tímum, og skal nú minnzt á
þau, er helzt hafa getið sér orðstír á síðari árum.
FJÖREFNI.
B-fjörefni eru allmikið notuð í drykkjumannameðferð.
Þess var áður getið, að langvinn drykkja leiði til skorts
á þessum efnum. Sjúklingunum er því, einkum í byrjun,
gefin fjörefni í ríflegum skömmtum, og hjálpar það vafa-
laust til að flýta fyrir líkamlegri uppbyggingu og þá um
leið andlegri. Ef læknirinn gefur sjálfur lyfið með inn-
dælingu, fær hann um leið tækifæri til að beita fortölum
og öðrum hollum sálrænum áhrifum, sem verða sjúklingn-
um einnig til styrktar í baráttunni við sjúkdóminn.
ÓBEITAR-MEÐFERÐ.
Þá hafa uppsölulyf allmikið verið reynd í þessu skyní.
Sjúklingurinn er látinn dvelja í sjúkrahúsi um þriggja
vikna skeið. Þar er honum, t. d. annan hvern dag, boðið
upp á þær víntegundir, sem hann helzt girnist og er van-
astur að drekka. Hann fær að finna angan þeirra og bragð.
Hann er hvattur til að drekka. En nokkru síðar verður
honum flökurt, og með endurteknum uppköstum losar
maginn sig við áfengið. Orsökin er sú, að skömmu áður
Heilbrigt líf
95