Úrval - 01.06.1943, Qupperneq 11
LEYNILEG SENDIFÖR TIL NORÐUR-AFRlKU
9
einn bátinn á meðan Clark og
Wright fóru 1 hann. Fjórmenn-
ingarnir gengu varlega út í
brimið, þangað til Wright sá að
ládeyða var framundan. „Nú!“
hrópaði haim.
Fjórmenningarnir ýttu bátn-
um frá og þeir Clark og Wright
reru af öllum kröftum. Kænan
klifraði upp háa öldu, sem geist-
ist upp að ströndimii, vóg salt á
faldinum, sem var að brotna —
og komst svo út úr brimgarðin-
um.
Holmes og Livingston komust
slysalaust í gegnum brimgarð-
inn, en Lemnitzer og Foote sóp-
aði brirnið á land í fyrstu at-
rennu, og sama var að segja um
Hambley og Courtney. Þeir fóru
seinastir frá landi, og einmitt
þegar þeir voru að korna að kaf-
bátnum, reis holskefla mikil
undir bátinn og slengdi honum
á kafbátinn. Nokkrir kafbáts-
manna gripu þá Hambley og
Courtney, en bátur þeirra brotn-
aði í tvennt og sópaðist á brott.
Þeim var öllum ljós hættan,
sem af þessu stafaði. Ef rekald
úr bátnum fyndist á ströndinni
og að auki skjöl og einkennis-
búningar, sem í honum voru, þá
mundi það ljóstra öllu upp um
ferð þeirra. Þeir gáfu Murphy
merki um þessa hættu og báðu
hann að sjá um, að allt, sem
ræki á land, yrði tekið og falið.
Murphy, Kent og Frakkarnir
fóru á fjörur næsta morgun og
gerðu eins og fyrir þá var lagt.
Kafbáturinn hélt frá landi og
komst ekki hraðar en fjórar
mílur, því að það var hámarks-
hraði hans, þegar hann var í
kafi. Clark var mjög í mun að
koma upplýsingum sínum hið
bráðasta til London, og hann
tók þá ákvörðun, að þeir yrði
að „rjúfa þögnina“ með því að
senda loftskeyti. Var það sent
til þeirrar bækistöðvar Breta,
sem næst var, tilkynnt um
hraða, stefnu og stöðu kafbáts-
ins og beðið um að flugvél jmði
send til móts við hann.
Kl. 3,20 eftir miðnætti kom
Catalina-flugbátur fljúgandi í
lítilli hæð, og hálfri annari
klukkustund síðar lentu Clark
og félagar hans, og gátu sent
hraðskeyti til London um það,
að förin væri á enda og hefði
gengið að óskum. Síðan var far-
ið um borð í flugvél, sem flutti
þá til Englands. Flugvélin lenti
í alls konar erfiðleikum,
eins og forsjónin iðraðist eftir
því, hve hún hefði verið Clark
hliðholl til þessa. Klukkustund-