Úrval - 01.06.1943, Blaðsíða 82
ÚRVAL
'80
stað hafa komið klukkur, úr og
chronometer, sem mæla tímann
með undraverðri nákvæmni. En
samtímis því sem við höfum
gert oss allt far um að endur-
bæta klukkurnar, notum við enn
úrelt og óhentugt mánaðartal,
sem er næstum 2000 ára gamalt.
Mánaðartal þetta var að vísu
endurbætt árið 1582, en þá var
einum degi, hlaupársdegi, bætt
inn í árið fjórða hvert ár, og
er sú endurbót kennd við Grego-
ríus páfa. Á þeim tíma mun það
hafa skipt sára litlu máli, hvort
í mánuðinum væru 24 eða 27
vinnudagar. Fæstir vissu þá,
hvort 28 eða 31 dagur voru
í mánuðinum, enda mun flestum
hafa verið ókunnugt um mán-
aðaheitin. Það hefir ekki valdið
bókhöldurum þeirra tíma nein-
um erfiðleikum, að ársf jórðung-
arnir voru mislangir eða að
fyrri helmingur ársins var
þrem dögum styttri en síðari
helmingurinn. Ekki mun það
heldur hafa skipt neinu máli, að
sum árin voru 52 launagreiðsl-
ur en önnur 53. Sannleikurinn
er sá, að árið 1582 og næstu
tvær aldir þar á eftir, hafa fæst-
ir þurft á mánaðartali að halda.
En tímarnir hafa breyst og víst
er um það, að nú er knýjandi
þörf fyrir breyttu og endur-
bættu mánaðatali.
,,13-mánaða almanaksárið“
skiftir árinu í 13 mánuði þar
sem hver hefir 28 daga. Verða
það 364 dagar, en dagurinn sem
umfram er, svo og hlaupársdag-
ur á hlaupárum, verða sérstak-
ir frídagar. Samkvæmt þessu
myndu allir mánuðir verða jafn-
langir, byrja allir á sunnudegi
og enda á laugardegi, og sér-
hvern mánaðardag myndi ávalt
bera upp á sama vikudag. Helzti
ókosturinn við þessa tillögu er
sá, að ársfjórðunslok falla ekki
saman við mánaðarlok, og auk
þess myndi breyting þessi valda
of mikilli röskun á núverandi
mánaðatali.
,,Heims-mánaðatalið“ hefir
ekki þessa ókosti. Það gerir ráð
fyrir 12 mánuðum, eins og nú
er, en flytur nokkra daga milli
mánaða þannig, að hver árs-
f jórðungur byrjar ávalt á sunnu-
degi og endar á laugardegi. —
Fyrsti mánuður hvers ársf jórð-
ungs hefir 31 dag en hinir tveir
30 daga hver, og verður þá
dagaskipting mánaðanna á
hverjum ársfjórðung ávalt eins,
31 — 30 — 30. Sérhvern mán-
aðardag ber alltaf upp á sama