Úrval - 01.10.1955, Side 73

Úrval - 01.10.1955, Side 73
ÞEGAR KRANSÆÐ I HJARTA STÍFLAST 71 fyrir sér hvað hann hefði getað gert til að koma í veg fyrir að hann fengi kastið. Svar við þeirri spurningu má að nokkru leyti finna í þeim lífsreglum, sem hann verður nú að lifa eftir: Hann verður að hafa gát á mataræði sínu; áður hafði hann vitað að hann var 15 pundum of þungur en lítið gert til þess að léttast. Hann verður að neita sér um alla dýrafitu, sem hann borðaði mikið af áður. Hann má aðeins nota mjög lítið salt, sem eykur vökvamagnið í líkam- anum og þá um leið þyngdina. Hann má ekki verða mjög þreyttur eða komast í mikla geðshræringu; þetta hafði hann einnigvitað áður, en engu skeytt því. Hann verður auðvitað að forðast alla mikla áreynslu. Aðrar reglur sem hann verður að fylgja eru óverulegar. Hann má ekki reykja, en hinsvegar drekka áfengi. Hann fer í rúmið klukkan tíu og borðar léttan mat. Þegar hann horfir á konuna sína og drengina sína þrjá, og fylgist með því hvernig hækk- andi vorsólin vekur gróðurmagn jarðarinnar til nýs lífs, þá er það í augum hans ekki venju- leg árstíðaskipti, honum finnst það vera stórkostleg gjöf til sín, náðargjöf sem getur kallað tár fram í augu hans. 0-0-0 SKÁLDSKAPUR 1 VlSINDUM. Skáldskapur hefur oft birzt sem staðreyndir í vísindaritum — stundum af ráðnum hug og stundum af tilviljun eða slysni. Ágætt dæmi um hið síðara er undarleg og flókin saga dular- fulls tékknesks læknis, O. Uplavici að nafni. Hann fæddist árið 1887 og birti einu ritgerð sina um læknisfræði sama árið. Hann hlaut doktorsnafnbót 23 árum síðar x Bandaríkjunum og dó í Englandi árið 1938. Dr. Clifford Dobell hefur skrifað ævisögu hans og er næsta ólíklegt að fleiri verði til þess. Saga hans er á þessa leið: 1 janúar 1887 birtist í tékknesku læknablaði grein eftir Jaro- slav Hlava prófessor; greinin hét: 0 uplavici. Predbezne sdeleni, sem þýðir Um blóðsótt. Bráðabirgða skýrsla. En þegar umsögn um þessa grein birtist i þýzku læknablaði, féll af vangá niður nafn Hlava, en i staðinn kom „Uplavici, O (Blóðsótt, Um). Þannig birtist nýtt höfundarnafn í bókmenntum læknavísind- anna. Árið 1910 var vitnað í „Uplavici, O" í Index-Catálogue of Medical and Veterinary Zoology, sem kemur út í Bandaríkj- unum, og þar var honum gefin doktorsnafnbót -— innan sviga. 1 meira en fimmtíu ár var dr. Uplavici öðru hvoru getið í læknisfræðiritum í Evrópu, Ameríku og jafnvel Asíu — þangað til dr. Dobell uppgötvaði hið sanna í málinu og kvað þennan læknisdraug niður fyrir fullt og allt. — Frank Lane í „The Listener".
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.