Úrval - 01.10.1955, Qupperneq 80
TRÚ OG SKYNSEMl
Grein úr „New Statesman and Nation“,
eftri A. J. Wicken.
Brezka blaðið Nev: Statesman and Nation efndi til ritgerðar-
samkeppni um „trú og skynsemi“ meðal ceskufólk innan 26 ára
aldurs snemma á þessu ári. Tilefnið mun hafa verið útvarpserindi,
sem sálfrœðingurinn Margaret Knight flutti i brezka útvarpið um
siðgceði án trúar, en erindi þessi vöktu miklar blaðadeilur og um-
rœður í Bretlandi. Úrval birti þessi erindi i 1. liefti þ.á. Þátttaka
i samkeppninni var mikil, bárust yfir 700 ritgerðir, frá mörgum
löndum. Dómnefndin var skipuð fulltrúum kirkju, heimspelci og
vísinda, og urðu þeir allir sammála um val beztu ritgerðanna.
Tvcer ritgerðir skiptu með sér fyrstu verðlaunum og birtir Úrval
aðra þeirra hér á eftir.
TRÚ, eða „sannfæring um
réttmæti trúarbragðakenn-
inga“, gegnir, eins og flestar
mannlegar athafnir, hlutverki í
lífi mannanna. Með þessu er
átt við, að ef trúarskoðanir
manns eða hóps manna eru at-
hugaðar, kemur í ljós, að þær
styrkja hæfileika hans til að
lifa. Trúin er eins og verkfæri,
sem menn nota, þó að þeir sem
eru trúaðir, líti sjaldan þannig
á hana.
Sú staðhæfing, að trúin sé
aðferð til að leysa vandamál lífs-
ins, byggist á fjórum forsend-
um. Hin fyrsta er sú, að trúin
gegnir mörgum hlutverkum:
hún vinnur mörg verk. Önnur
er sú, að hún er ekki alltaf nauð-
synleg, þ. e. hún hefur ekki allt-
af verk að vinna, og þó að svo
®é, geta önnur tæki verið tiltæk
til að leysa af hendi verkið. Hin
þriðja er sú, að maður sem er
trúaðar, notar trúna ýmist til
þess að leysa af hendi öll þau
verk, sem hún er fær um að
vinna, eða aðeins sum þeirra,
og að af hópi manna, sem eru
sömu trúar, leita sumir halds
í trúnni í þessum efnum og aðr-
ir í öðrum. Hin einstöku hlut-
verk trúarinnar eru m.ö.o. ekki
jafnmikilvæg hjá öllum mönn-
um. Fjórða forsendan er sú,
að notagildi trúar fer ekki eftir
því, hvort hún er sönn eða ekki.
Hlutverk trúarinnar er m. a.
að hafa stjórn á hegðun ann-
arra manna, að hjálpa einstak-
lingnum til að laga sig eftir að-
stæðum lífsins, og að skýra hin
ýmsu fyrirbrigði lífsins.
Það hlutverk trúarinnar að
stjórna hegðun mannanna hefur