Úrval - 01.10.1955, Side 88

Úrval - 01.10.1955, Side 88
86 ÚRVAL hefjast hjá nálægu vatnsbóli, milli nashyrnings og villinauts. Ekkert varð samt úr áflogum; illskan hjaðnaði smátt og smátt og þetta endaði með hrottalegu fnæsi af hálfu nashyrningsins, en stappi og bölvi af hálfu nautsins. Farangur okkar hafði nú ver- ið dreginn upp á kaðli og við fórum að ná í dót okkar, fórum í hlý utanyfirföt og settum á okkur mjúka ilskó, en settumst síðan út á litlu svalirnar til að gá að villidýrum. Þarna virtist krökt af allskonar villidýrum. Þetta fyrsta kvöld sáum við sjö nashyrninga, ellefu stóra villigelti með sterklegar vígtenn- ur, tvö vörtusvín, fimm villi- naut, fjölda af öpum og rádýr- um, en aðeins eina hýenu. Morg- uninn eftir sá ég villinaut koma út úr skóginum og fara að tjörn í skóginum. Þegar tuddinn var búinn að drekka vel og lengi, óð hann út í, velti sér á bakið og buslaði og fnæsti. Hann skemmti sér af hjartans lyst, skóf upp leðjuna í botninum með hinum afarstóru hornum, bylti sér á allar hliðar og spark- aði fótunum út í loftið. Ég var að virða hann fyrir mér af mikl- um áhuga í sjónauka mínum, þegar viðhorf hans til umhverf- isins breyttist, allt í einu úr áhyggjuleysi í tortryggni — gol- an hefur sjálfsagt borið manna- þefinn til hans —, allt í einu brölti hann þunglamalega á fæt- ur, stóð grafkyrr í nokkrar sek- úndur, en tók svo til fótanna og fór á stökki inn í skóginn. Nóttina eftir sáum við flest sömu dýrin og kvöldið áður. Þegar nashyrnings-mömmurnar komu að saltbólinu með unga sína, höfðu þær nánar gætur á ,,börnunum“. Þetta voru tvær f jölskyldur, og þeim var illa við þrjú villinaut, sem voru að snudda þama. Þær gerðu hverja árásina af annarri á þessi að- skotadýr. Að lokum hrökluðust nautin frá án þess að ná í salt- ið. Undir morgun.fór ég í rúm- ið og ákvað að bæta mér upp svefnmissinn tvær undanfarnar nætur. Þriðja kvöldið var tungl í fyll. ingu, og í hinni ágætu birtu þess sáum við hvorki meira né minna en fjórtán nashyrninga, þar á meðal einn ellihruman vesaling með afbrotið horn, — er líklega hefur brotnað í bar- daga. Hann stóð undir trénu okkar rymjandi og hóstandi fram undir morsrun. Klukkan rúmlegra 1 um nóttina kallaði ,,lyftudreng-urinn“ á okkur til að sjá villinautahjörð — sam- tals um nítján — er snerust stappandi og bölvandi kringum saltbólið, en þar voru fyrir tvær skapvondar nashyrningsmæður með f jölskyldum sínum og vildu ekki yfirgefa bólið. Klukkan 3 vorum við aftur vakin til að sjá stóran fíl, er einnig var við saltbólið. Ilann mokaði saltinu upp í sig með rananum og rumdi og ropaði af ánægju. Hann var
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.