Úrval - 01.10.1955, Page 89

Úrval - 01.10.1955, Page 89
DVÖL I TRJÁKRÖNU-GISTIHÚSINU 87 að þessari skemmtilegu iðju sinni fram til klukkan 5, og var þá næstum búinn með allt saltið. Síðustu nóttina, sem ég dvaldi þarna, vorum við aðeins fimm. Rétt eftir te-ið (um fimmleytið) settumst við út á svalirnar, dúð- uð í ábreiður og ullartrefla, því að svalt var í veðri og talsverð- ur vindstrekkingur. Brátt sáum við nokkur risastór villisvín, skógarhirti, vatnshirti og vörtu- svín. Þá fór að rigna og skall yfir þoka, svo að ekkert sást. Við fórum því inn og settumst að kveldverði. Ég fann sérstak- lega til þess þá, hvað það var einkennilegt og furðulegt líf sem við lifðum þama, að setj- ast að dúkuðu veizluborði með gómsætum réttum og öllum venjulegum þægindum siðmenn- ingarinnar, og vera sér þess vit- andi að maður var í húsi, sem tildrað var upp í tré, umkringd- ur allskonar hættulegum villi- dýrum, eins og fílum, nashyrn- ingum og villiuxum. Þetta vakti hjá manni einkennilegar tilfinn- ingar. Klukkan kvart yfir sjö morg- uninn eftir sáum við tvo gríðar- stóra nashyrninga koma niður götuna að saltbólinu. Nashyrn- ingsmamma, sem við höfðum oft séð áður og gefið nafnið Belinda, var þar fyrir með son sinn lít- inn. Hún tók á móti „herrun- um“ með fnæsi og rymjanda og réðst þegar gegn þeim, en þeir hopuðu undan „skassinu“ rymj- andi. Þegar hún kom til baka, starði hún lengi með tortryggn- issvip á ,,Trjákrónuna“, eins og hana grunaði að þar dyldist ef til vill eitthvað af þessum and- styggilegu mannskepnum, sem gátu verið svo hættulegar. Hún kom meira að segja vaðandi rakleitt að trénu, eins og hún væri að hugsa um að stanga það, en sá sig um hönd og hætti við það. Seinast kallaði hún hvatskeitlega á sonar-krýlið og hvarf svo með honum inn í skóginn. Nú var kominn hádagur og við fórum inn aftur til að eta árbýtinn, egg og reykt svína- kjöt og sjóðheitt kaffi á eftir. Er við höfðum matazt, settum við hafurtask okkar í pokann sem það kom í, kvöddum og fórum niður stigana með fylgd- armanninum. Gengum síðan gegnum skóginn til bílanna, er fluttu okkur aftur til hversdags- lífs og daglegra starfa. — Ég mun aldrei gleyma þessari skemmtilegu dvöl minni í „Trjá- krónunni"! Ó. Sv. þýddi. Kurteisi kostar ekki neitt, segir máltækið, en hún getur þó stund- um valdið óþægindum. Eins og t. d. þegar kafarinn mætti undurfallegri hafmey á mararbotni og tók ofan hjálminn . . . .!
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.