Úrval - 01.10.1955, Page 104

Úrval - 01.10.1955, Page 104
102 ÚRVAL að sjá þetta litla nef fletjast út á rúðunni og smáar hvítar tennur, sem skinu milli rós- rauðra, brosandi vara. Við þut- um fram til að opna fyrir henni, hrundum hver öðrum — og þarna stóð hún — svo ljúf og kát — steig inn fyrir, breiddi úr svuntunni í áttina til okkar, hallaði örlítið undir flatt og brosti. Löng og þykk, kast- aníubrún hárflétta féll fram yfir öxlina og niður barminn. Við, óhreinir, skuggalegir, af- skræmdir menn, horfðum á hana neðan í frá — úr kjallaranum lágu fjögur þrep upp í út- göngudyrnar — við teygðum fram álkurnar og gláptum, buð- um henni góðan dag og sögðum við hana sérstök orð, sem voru óvanaleg í okkar munni og sem við geymdum aðeins handa henni. Þegar við töluðum við hana voru jafnvel raddir okkar mýkri og gamanið græskulaust. Öll framkoma okkar við Tönju var sérstök og aðeins fyrir hana. Bakarinn valdi beztu og brúnustu hagldabrauðin úr ofn- inum og hvolfdi varlega úr skóflunni niður í svuntu henn- ar. — Gættu þín, að rekast ekki á húsbóndann! aðvöruðum við hana, og hún hló íbyggin, kall- aði fjörlega til okkar: — Verið þið sælir, tugthús- limir mínir! — og svo var hún þotin burt, eins og ofurlítill mús- arungi. Þetta var allt og sumt . . . En lengi á eftir töluðum við um hana í bróðerni — við sögðum allt það sama um hana og við sögðum í gær og daginn þar áður, því bæði hún og við og umhverfi okkar var það sama og það hafði verið áður . . . Til- breytingarleysi eins og þetta er ákaflega kveljandi og þungbært fyrir lifandi mann, og ef það kálar honum ekki alveg, þá verður það honum því þungbær- ara sem það dregst meir á lang- inn . . . Við vorum vanir að tala um konur á þann hátt, að það komu stundir, að okkur bauð við því sjálfum. Þetta er skilj- anlegt, því vera má, að þær kon- ur, sem við þekktum, hafi ekki átt öðruvísi umtal skilið. En um Tönju sögðum við aldrei neitt ljótt. Enginn okkar dirfð- ist nokkru sinni að snerta við henni, og jafnvel tvíræð orð lét- um við aldrei falla í hennar ná- vist. Kannski stafaði þetta af því, að henni dvaldist aldrei lengi hjá okkur, að hún kom til okkar eins og stjörnuhrap og var horfin áður en varði, kannski var það líka af því, að hún var lítil og mjög falleg, og allt, sem fallegt er, vekur virð- ingu hjá mönnum, jafnvel rudd- um. Og ennþá eitt: — að þrátt fyrir það, þó að þrældómurinn hefði gert okkur að sljóum ux- um, þá vorum við þó eftir sem áður menn, og eins og allir aðr- ir menn gátum við ekki lifað án þess að tilbiðja eitthvað, sama hvað það væri. Tanja var
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.