Bókasafnið - 01.01.2002, Síða 5

Bókasafnið - 01.01.2002, Síða 5
Til aö reka allt þetta þurfti Booth að ráöa starfslið. „Fangar eru góöir bókamenn því þeir hafa ekki getað gert neitt annað en lesið“ sagði Frank. Booth réð til sín fyrrverandi fanga sem nýkomnir voru út. Hinn fyrsti reyndist mjög vel. Sá næsti aldeilis miður. Og áður en nokkur vissi var allt í óefni. Sumir starfsmannanna rændu og rupluðu. Gjaldþrot blasti við og Booth neyddist til að selja Hay Cinema Boofeshop keppinaut sínum. Booth hélt þó sínu striki. Árið 1971 keypti hann kastalann í Hay. Þá varð Castle Boofeshop að veruleika, og skömmu síðar The Honesty Boofeshop sem er sjálfsafgreiðslubúð utandyra í hallargarðinum, alltaf opin; kostar bundin bók 50 p en óbundin 30 p. Reyndar eru ekki alveg allir kaupendurnir heiðarlegir en einhver rýrnun er af hinu góða því þá er meira pláss fýrir aðrar bækur. Og kannski betra að einstaka lesandi steli sér bók heldur en að vera allsendis bókarlaus. Nú fóru fjölmiðlar að veita bókabænum athygli. „Other places have hotels, scenery, monuments. Only Wales has a Town of Boofes." Blaðamenn hvaðanæva skrifuðu um Hay: „Mid Wales town may become Las Vegas of the boofe world" skrifaði einn; „Túrning a Welsh ualley into a utopiafor bookworms" skrifaði annar. Til að auka enn athygli fjölmiðla á bókabænum ákvað Booth að taka stóra skrefið: Hinn 1. apríl, ein- mitt á þeim merka all-fools-day, árið 1977 lýsti Booth yfir sjálfstæði Hay-on-Wye og tók sér konungsnafn: King Richard, og var samstundis auknefndur the boofe- Bófeabúðin í kastalanum „Hay Castle Boofeshop." Bcefeur úti og inni í Hay Cinema Boofeshop. hearted. Blöðin birtu fréttina, og enn ein ókeypis aug- lýsing á bókabænum var staðreynd. Reyndar gerðu sum blöðin meira úr bókakónginum undarlega en fornbóksölunni, en það kom í sama stað. Að sjálfsögðu hefur allt þetta ævintýri ekki verið átakalaust. Á árunum fýrir og eftir 1970 dróst margt fólk til Hay-on-Wye og var lifað hátt og ekki alltaf samkvæmt ýtrustu hollustu. Tvö hjónabönd Booths fóru í súginn, hið seinna entist aðeins 24 tíma. Síðla árs 1977 þegar óvenjukalt var í veðri og Booth hafði lagt mikinn við í arininn varð eldur laus og brann kastalinn að verulegu leyti. Og árið 1995 kenndi Booth sér meins, átti erfitt með að halda jafnvægi og var orðinn heyrnarlaus á öðru eyra. Læknir hans ráðlagði honum að hætta að drekka, sem hann gerði í hálft ár, en kom fyrir ekki. Hann greindist með heilaæxli á stærð við epli bakvið vinstra eyra og gekkst undir tví- sýna aðgerð sem tókst þó vonum framar; hann er lamaður vinstra megin í andliti en ekki virðist annað hrjá hann. En Booth hefur líka verið gæfumaður. Þriðja kona hans færði Booth tvö stjúpbörn og átti auk þess nokk- urt fé; hún er ennfremur snjall fjármálamaður. Fjöru- tíu árum eftir að Richard Booth opnaði fyrstu forn- sölu sína getur hann því litið stoltur yfir blómlegan bókabæinn Hay-on-Wye. í bænum og næsta nágrenni BÓKASAFNIÐ 26. ÁRG. 2002 3
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.