Bókasafnið - 01.01.2002, Síða 4
Steingrímur Jónsson
Bókabærinn Hay-on-Wye
Abökkum árinnar Wye við rætur Svörtufjalla,
rétt við landamærin milli Englands og Wales,
stendur bærinn Hay þar sem um 1400 manns
búa. Upphaf bæjarins má rekja aftur á 12. öld
þegar Normannar reistu kastalann sem enn stendur á
hæðinni í miðjum bænum. Margar orustur voru á
miðöldum háðar á svæðinu umhverfis bæinn og kast-
alinn brann nokkrum sinnum en var jafnan endur-
reistur. Um miðja 17. öld heimsótti Oliver
Cromwell bæinn og gisti á kránni Old
Black Lion þegar hann reyndi að
hreinsa til á trúarbragðasviðinu
með því að setja kaþólikka til
hliðar. Annars gerðist fátt í
Hay sem fest hefur verið á
spjöld sögunnar.
Árið 1921 komst Hay-on-
Wye í fréttirnar. Herbert
Rowse Armstrong, rúmlega
fimmtugur lögfræðingur og
majór í breska hernum sem
barist hafði í Frakklandi á fyrra-
stríðsárunum, var ákærður fyrir að
hafa myrt eiginkonu sína með arseníki.
Armstrong var sekur fundinn, dæmdur til
dauða og hengdur ári síðar. Skiptar skoðanir hafa alla
tíð verið um sekt Armstrongs; margir sem skrifað
hafa um málið hafa efast um réttmæti dómsins og
talið aftökuna dómsmorð.
Eftir seinni heimsstyrjöldina seig mjög á ógæfu-
hliðina í mörgum minni bæjum í Wales. Unga fólkið
fluttist burt og verslun og viðskipti drógust saman.
Um 1960 hafði kránum í Hay sem í upphafi aldarinn-
ar voru 35 talsins fækkað niður í ellefu. Og hinn 31.
desember 1962 ók síðasta járnbrautarlestin frá Hay
og járnbrautarstöðinni sem þjónað hafði íbúunum
um aldarskeið var endanlega lokað.
Þá var það að Richard Booth, 23 ára gamall maður
sem stundað hafði nám við Oxfordháskóla, fluttist til
foreldra sinna sem keypt höfðu búgarð rétt utan við
Hay. Fátt var um að velja fyrir Booth til að starfa við.
Þegar honum árið 1962 bauðst að kaupa fyrir lítið fé
gömlu slökkvistöðina í Hay sem breytt hafði verið í
verslunarhúsnæði sló hann til og setti á stofn forn-
bókabúð. Engum leist á fyrirtækið. „Nobody reads
books in Hay-on-Wye“. Booth auglýsti að hann keypti
notaðar bækur, allt frá einstökum bindum upp í heil
söfn. Honum bauðst bókasafn sem tilheyrt hafði
kaþólskum erkibiskup í Cardiff, mörg hundruð bindi
af 17. og 18. aldar guðfræði. Gömul guðfræði var
reyndar eitt hið vonlausasta til að selja í fornsölu, en
engu að síður tóku menn eftir honum þegar hann var
kominn með þetta mikla safn og hann komst í sam-
band við ýmsa aðra fornsala sem keyptu hver af öðr-
um. Booth réði til sín Frank English, drykk-
felldan garðyrkjumann foreldra sinna,
og varð það hlutskipti hans að
smíða bókahillur fyrir allar bæk-
urnar sem Booth keypti á
næstu árum. Frank kenndi
Booth líka að lifa vel fyrir
lítið fé; benti honum á að
krárnar sem Booth stund-
aði væru þær dýrustu í
bænum en til væru aðrar
þar sem menn fengju jafn-
gott og jafnmikið fyrir mun
lægra verð. Ein besta kráin í
þeim efnum var The Three Tlms þar
sem fröken Lucy skenkti ölið og sagði
sögur í þessari elstu krá í Hay, sem er svo
gömul að þar drukku menn öl áður en Shakespeare
skrifaði sína dramatík við lok 16. og í upphafi 17. ald-
ar. Frank leist vel á Lucy og bað hennar iðulega en
fékk jafnan sama svarið: „I’H thinfe about it, Frank."
Bækur eru félagslyndar. Þær safnast þangað sem
fleiri bækur eru fyrir. Og hjá Booth var þetta algildur
sannleikur. Hann keypti skömmu síðar matvörubúð
sem farið hafði yfirum og breytti í fornbóksölu. Og árið
1969 keypti hann kvikmyndahúsið í bænum, breytti því
í fornbóksölu og nefndi Hay Cinema Bookshop. Það varð
stærsta fornbóksala í heimi með 250 000 bókum í hill-
um og Booth komst í Guinness Boofe ofRecords fyrir vikið!
Booth ferðaðist um Wales, England og Skotland og
keypti bækur. Stundum keypti hann af endurvinnslu-
fyrirtækjum sem lágu með mörg tonn af prenti og
bjargaði þar með margri bókinni frá hakkavélunum.
Booth fór nokkrar ferðir til Bandaríkjanna og keypti
bækur í þúsundatali. Bækurnar voru allar sendar í
gámum til Hay-on-Wye; margir Bandaríkjamenn
fylgdu í kjölfarið, keyptu bækurnar á margföldu verði
og fóru með þær aftur heim.
2
BÓKASAFNIÐ 26. ÁRG. 2002