Bókasafnið - 01.01.2002, Síða 18

Bókasafnið - 01.01.2002, Síða 18
Astrid Margrét Magnúsdóttir Mat á kennslu í upplýsingalæsi á háskólastigi Tillögurfyrir Bókasafn Háskólans á Akureyri Inngangur Grein þessi er byggð á meistaraprófsritgerð Astrid Margrétar Magnúsdóttur, An eualuation o/ information literacy initiatiues in higher education : implications for the Uniuersity of Akureyri Library, sem unnin var við há- skólann í Loughborough í Englandi árið 2000. Mark- mið ritgerðarinnar var að rannsaka hvernig kennslu og þjálfun í upplýsingalæsi á háskólastigi er háttað. Það var gert með því að skoða dæmi um kennsluverk- efni í upplýsingalæsi frá nokkrum heimsálfum en að lokum voru nokkur þeirra tekin til umfjöllunar og metin með tilliti til kennsluaðferða og kennslutækni. Rannsóknin miðaðist við fyrstu þrjú til fjögur námsár háskólastúdenta. Lokaniðurstöður rannsóknarinnar voru tillögur um kennslu í upplýsingalæsi fyrir Bóka- safn Háskólans á Akureyri (BSHA). Hér á eftir fer sam- antekt um helstu niðurstöður rannsóknarinnar og hvernig BSHA hefur staðið að framkvæmd og úr- vinnslu tillagnanna. Upplýsingalæsi - skilningur á hugtakinu Miklar samfélagslegar og tæknilegar breytingar hafa átt sér stað í þjóðfélaginu og þar með einnig atvinnu- lífinu með tilkomu Internetsins og þess upplýsinga- magns sem þar er að finna. Áhrifa þessa gætir greini- lega í starfsemi háskóla og kennslu þar og er upplýs- ingalæsi hugtak sem á síðustu tíu árum hefur orðið æ mikilvægara. Nú er nemendum þörf á að vera bæði meira sjálfbjarga og sjálfstæðari í upplýsingaleitum sínum og tryggja þarf að leitir þeirra verði árangurs- ríkari. Segja má að þróunin hafi verið frá því að kenna nemendum hvernig þeir eigi að nota ákveðin tæki/- verkfæri að því að kenna þeim hugtök og aðferðir/- ferli. Það hafa með öðrum orðum átt sér stað um- skipti frá bókasafnskennslu til upplýsingalæsis og endur- og símenntunar. í stað þess að nota hugtakið bókfræðikennsla og notendafræðsla er hugtakið upp- lýsingalæsi nú nær allsráðandi. Bandaríkin Skilgreining amerísku bókavarðasamtakanna (Am- erican Library Association - ALA) hefur víða verið notuð til að skýra hvað upplýsingalæsi er og hefur BSHA stuðst við hana. Skilgreiningin byggist á þeirri hugmynd að allir hafi sama rétt á upplýsingum/á að nálgast upplýsingar til þess að ná árangri í nútíma upplýsingasamfélagi. Upplýsingalæs einstaklingur er sá sem veit hvenær upplýsinga er þörf og hefur yfir að ráða færni til að finna þær, meta gildi þeirra og hagnýta þær. Upplýsingalæs einstaklingur hefur lært að læra og afla sér þekkingar vegna þess að hann veit hvernig þekkingin er skipulögð, hvar hann finnur réttar upplýsingar og hvernig hann getur nýtt sér þær á þann hátt að aðrir geti lært af þeim. Færni í upplýs- ingalæsi stuðlar að og er góður undirbúningur fyrir símenntun einstaklingsins vegna þess að hann getur alltaf fundið viðeigandi/réttar upplýsingar fyrir það verkefni sem hann tekst á við hverju sinni. Tvö stór bandarísk verkefni í upplýsingalæsis- kennslu hafa vakið athygli. Það eru verkefni The In- stitute for Information Literacy (ILL) og The National Forum on Information Literacy. Vefsíður þessara verkefna hafa að geyma gagnlegar upplýsingar um efnið, tilvísanir í lesefni, áhugaverða tengla o.s.frv. Bretland í Bretlandi hefur upplýsingalæsi verið skilgreint af Task Force on Information Sfeills en það varð ljóst strax og vinna þeirra hófst að Bretland hefur ekki eins skýrar hugmyndir um upplýsingalæsisfærni og mörg önnur lönd. Þó er greinilegt að mikill áhugi er á efn- inu og margt að gerast á þessu sviði þar í landi. í skýrslunni, SCONUL (Standing Conference of National and Uniuersity Libraries) Position Paper in Information Sfeills in Higher Education, sem kom út árið 1999 er sett fram líkan sem kallað er Information Sfeills Model. Þar er færni manna skilgreind í sjö þáttum þar sem við- komandi þróast frá því að vera byrjendur í notkun 16 BÓKASAFNIÐ 26. ÁRG. 2002
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.