Bókasafnið - 01.01.2002, Blaðsíða 20

Bókasafnið - 01.01.2002, Blaðsíða 20
og margir þekkja ekki grundvallarhugtök í upplýs- ingalæsi. Viö skipulagningu kennslu í upplýsingalæsi þarf að hafa í huga hverskonar markhóp um ræöir og hvernig kennsluumhverfi henti honum best. Fram- setning upplýsinga hefur breyst mikið á síðustu árum með tilkomu Internetsins og Veraldarvefsins. Há- skólakennsla hefur tekið mið af því og er að þróast frá fyrirlestraforminu í átt að gagnvirku námsum- hverfi. Aðgangur að stafrænum gagnasöfnum gefur nemendum einnig tækifæri á að fá þjálfun í leitar- tækni með því að gera verkefni á staðnum. Nýtt hlutverk bókasafnsfræðinga Kennslu- og námsumhverfið gefur bókasafnsfræð- ingum einnig færi á að stofna til samvinnu við kenn- ara og samlaga kennslu í upplýsingalæsi að nám- skránni. Þeir þekkja og hafa reynslu af að meðhöndla rafrænar upplýsingar og ráða yfir færni í að kenna upplýsingatækni. Þarna fá bókasafnsfræðingar tæki- færi til þess að breyta út frá sínu hefðbundna hlut- verki og taka þess í stað að sér forystu og hafa frum- kvæði að samvinnu við deildir og kennara í ýmsum málum eins og t.d. gerð kennsluáætlana. Aðferðafræðin Aðferðafræði rannsóknarinnar fólst í því að skoða hvað gert hefur verið á sviði upplýsingalæsis og velja verkefni til þess að meta og fjalla sérstaklega um. Valin voru verkefni á breiðu sviði, tekið tillit til hvort þau höfðu eitthvað nýtt fram að færa og hversu yfirgripsmikil þau voru og reynt að velja dæmi frá mismunandi heimsálfum. Sum þeirra hafa verið notuð sem fyrirmyndir í kennslu og þjálfun í upplýs- ingalæsi á háskólabókasöfnum og hlotið viðurkenn- ingu frá viðkomandi starfsstétt. Benchmark aðferðin var notuð til þess að meta markmið kennslunnar, athafnir, verkefni og aðferðir í kennslu í þeim tilgangi að sjá hvernig færni í upplýsingalæsi er felld inn í kennslu nemenda. ACRL (Associaton for College and Research Libraries) Standards Til þess að meta og greina verkefnin sem urðu fýrir valinu voru staðlar Samtaka amerískra háskóla- og rannsóknabókasafna (Association for College and Re- search Libraries) notaðir. Þeir voru gefnir út í janúar 2000 og ganga undir heitinu „Information Literacy Competency Standards for Higher Education". Þessir staðlar urðu fyrir valinu fyrst og fremst vegna þess að af þeim skilgreiningum á upplýsingalæsi sem til eru, eru þeir e.t.v. ítarlegastir. Einnig er mjög auðvelt að meta upplýsingalæsisfærni með notkun þeirra. ACRL staðlarnir eru byggðir upp á fimm megin stöðlum sem innihalda síðan nokkra frammistöðu- vísa, samtals 22 talsins. Hverjum frammistöðuvísi fylgja síðan niðurstöður. Þessar niðurstöður er hægt að nota til þess að meta upplýsingalæsisffamfarir nem- endanna. Verkefni sem urðu fýrir valinu Samtals voru sjö verkefni í kennslu og þjálfun í upp- lýsingalæsi skoðuð og metin og fer hér listi yfir verk- efnin og vefslóðir þeirra: • California State University, San Marcos (CSUSM) - Information Literacy Program http://library. csusm.edu/departments/ilp/main.asp http://library.csusm.edu/departments/ilp/ • Florida International University (FIU), Miami - Information Literacy at FIU http://www.fiu.edu/~library/ili/ • University of Texas at Austin - Texas Information Literacy 'Iútorial (TILT) http://tilt.lib.utsystem.edu/ • University of Lincolnshire & Humberside (ULH) - Effective Learning Programme (ELP) http://home.ulh.ac.Uk/Ldu/uscc/uscc2.html#top • University of Strathclyde, Business Faculty - IL class http://www.dis.strath.ac.uk/literacy/sbsclass99. html • MEG - (Multimedia Education Group), University of Cape Town, South Africa http://www.meg.uct.ac.za/work.htm • Universiteit Maastricht - Studielandschappen. Study landscape (Learning Resource Centre) for problem-based learning http://www.ub.unimaas.nl/actueel/studielandsch aplezing.htm Niðurstöður Framsetning kennsluefnis Öll verkefnin sem tekin voru til umfjöllunar nota fleiri en eina leið til þess að kenna upplýsingalæsis- færni. Eftirfarandi tafla sýnir yfirlit yfir framsetningu kennsluefnisins eftir stofnunum. Mismunandi var hversu góðar upplýsingar lágu fyrir en taflan gefur gott yfirlit yfir fjölda aðferða. Upplýsingalæsi er bæði kennt sem hluti af aðalnámskrá og sem einstök námskeið, þ.e. ekki tengd ákveðnum námsgreinum, auk þess sem bókasöfnin bjóða upp á ýmsar prentað- ar leiðbeiningar og efni sem sett er fram á vef. Rann- sóknir hafa sýnt að með því að tengja kennslu í upplýsingalæsi við ákveðin námskeið í aðalnámskrá er notendafræðslan gerð raunhæfari og meiri líkur á því að nemendur skilji og noti þekkinguna er þeir afla sér og tengi við raunhæf verkefni og vandamál sem þeir þurfa að leysa í námi sínu og í framtíðinni. Kennslufrœði Öll kennsla í upplýsingalæsi ætti að vera byggð á viðurkenndum kenningum í kennslufræði sem gefa 18 BÓKASAFNIÐ 26. ÁRG. 2002
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.