Bókasafnið - 01.01.2002, Page 39
En jafnframt virðast vinsældir gagnasafnanna mun
meiri heldur en eldri rannsóknirnar sýndu. Skýringin
liggur að öllum líkindum í aldri þeirra rannsókna.
Gagnasöfn voru mun óaðgengilegri hér áður fyrr og
því eðlilegt að fólk leitaði annað. í rannsókn undirrit-
aðrar 'frá 1999 kom einnig skýrt í ljós að þeir sem
höfðu aðgang að gagnasöfnum notuðu þau en ekki
þeir sem þurftu að leita út fyrir vinnustað sinn til
þess að geta leitað eða fengið einhvern til þess að
leita í slíkum söfnum.6
Gerður var samanburður á svörum íslensku vís-
indamannanna og þeirra fmnsku sem getið er í kafl-
anum Fræðilegur bakgrunnur, en finnsku þátttak-
endurnir voru einnig spurðir að því hvaða rafrænt
efni þeim fyndist mikilvægast að hafa aðgang að. Er
sá samanburður sýndur í 3. töflu. Töflunni er skipt
upp og er ástæðan sú að ekki var algert samræmi í
könnununum tveimur og jafnframt var ekki vitað
hvernig Hormia-Poutanen reiknaði prósenturnar en í
könnun hennar númeruðu þátttakendur valkostina
frá einum og upp í fimm. íslensku prósentutölurnar í
töflunni miðast við fjölda þeirra sem settu viðkom-
andi kost í 1.-3. sæti. Skoða ber íslensku prósentutöl-
urnar í því ljósi að fáir einstaklingar standa að baki
hverrar tölu. Umreikningur í prósentur var gerður til
þess að auðvelda samanburð við finnsku niðurstöð-
urnar.
3. tafla. Efni sem menn vildu helst fá rafrænan aðgang
að. Samanburður við FinELib- könnun frá árinu 1999.
ísl. könnun 2000 (1. -3. sæti)
Erlend fagtímarit 25,0%
Erlend útdráttarrit 17,9%
Rafr. háskólaútg. 11,7%
Alfræðirit 13,6%
Innlend gagnasöfn 13%
Orðabækur 11,4%
Tilvitnanarit 9%
Fræðil. innl. efni 6,0%
Innlent eldra efni 3,8%
Finnsk könnun 19997
Erlend fagtímarit 23,1%
Erlend útdráttarrit 15,6%
Alfræðirit 8,0%
Orðabækur 9,9%
Tilvitnanarit 9,7%
Innlend fagtímarit 8,9%
Innlend gagnasöfn 5,5%
Innlend tilvitnanarit 4,8%
Annað 1,7%
Innlent eldra efni 1,1%
Athyglisvert er að niðurstöðunum svipar mjög
saman þrátt fyrir að fagsvið finnsku þátttakendanna
í könnuninni 1999 væri mun víðara en þeirra ís-
lensku. Um 32% þeirra unnu á sviði náttúrufræða,
23% voru í viðskipta- og samfélagsgreinum, 19% í
hugvísindum og um 15% í tæknigreinum. í læknis-
fræði voru rúm 8% og um 2% unnu á sviði menningar
(kultur).
í ljósi niðurstaðna þessarar litlu könnunar er
ánægjulegt að Verkefnisstjórn um aðgang að gagna-
söfnum skuli, sumarið 2001, hafa náð að semja við
helstu útgefendur fagtímarita í heiminum um að-
gang að fullum texta þeirra í rafrænu formi. Jafnframt
hefur mikið áunnist í samningum um aðgang að út-
dráttarritum og vísindamenn munu líka meta tilvitn-
anaritin frá ISI (Institute for Scientific Information)
þótt vissulega komi þau ekki í staðinn fyrir helstu út-
dráttarritin á fagsviði hvers og eins. Á þeim stofnun-
um þar sem ekki er enn aðgangur að sérhæfðum út-
dráttarritum er aðgangur að ISI-tilvitnanaritunum
ómetanlegur.
Þakkir
Ég þakka Kristiinu Hormia-Poutanen fyrir að gefa
mér leyfi til þess að styðjast við könnun hennar á
notkun FinELib við samningu þessarar könnunar.
Einnig þakka ég bókasafnsfræðingunum á Land-
búnaðarháskólanum á Hvanneyri, Landmælingum
íslands og Náttúrufræðistofnun, þeim Steinunn S.
Ingólfsdóttur, Þórunni E. Sighvats og Pálínu Héðins-
dóttur, fyrir að sjá um framkvæmd könnunarinnar á
stofnunum sínum. Síðast en ekki síst þakka ég þeim
vísindamönnum sem gáfu sér tíma til þess að svara
könnuninni.
Tilvitnanir
1. HvarPis : rafræn gagnasöfn http://www.hvar.is [Uppl.
sóttar 23/11/2001.]
2. Erna G. Árnadóttir, 2001, bls. 49-50.
3. Guðrún Pálsdóttir, 1999, bls. 115-121 og 185.
4. Hallmark, Julie, 1994..
5. Kristiina Hormia-Poutanen, 1999.
6. Guðrún Pálsdóttir, 1999, bls. 115-121.
7. Hormia-Poutanen, Kristiina, 1999.
Heimildir
Erna G. Árnadóttir, 2001. Landsaðgangur að rafrænum
tímaritum : könnun á viðhorfi bókasafna. Bókasafnið 25:
49-52.
Guðrún Pálsdóttir, 1999. Innan seilingar: upplýsingaleiðir
vísindamanna og öflun heimilda. (M.A. ritgerð í
bókasafns- og upplýsingafræði). Reykjavík: Háskóli
íslands. Félagsvísindadeild, 190 bls.
Hallmark, Julie, 1994. Scientists’ access and retrieval of
references cited in their recent journal articles. College &
Research Libraries 55(3), 199-209.
Hormia-Poutanen, Kristiina, 1999. Koberen, dens rettigheder
og pligter. NVBF-conference, Reykjavík den 14. oktober.
http://www.bokis.is/fbr/hormia.ppt [Uppl. sóttar.
12/7/2001].
HvarPis : rafræn gagnasöfn [vefur Verkefnisstjórnar um
aðgang að gagnasöfnum] http://www.hvar.is [Uppl. sóttar
23/11/2001].
BÓKASAFNIÐ 26. ÁRG. 2002
37