Gátt - 2004, Side 4
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
4
Ágæti lesandi.
Þú hefur nú í höndunum fyrsta tölublað af Gátt, ársriti um
fullorðinsfræðslu og starfsmenntun sem gefið er út af
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA). Hlutverk Fræðslumið-
stöðvarinnar er að vera samstarfsvettvangur stofnaðil-
anna, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins,
um fullorðinsfræðslu og starfsmenntun á fjölþættu sviði,
m.a. að skapa vettvang fyrir umræðu um verkefni og
viðhorf líðandi stundar.
Markmið ársritsins er að efla umræðu um fullorðins-
fræðslu og starfsmenntun á Íslandi. Enn fremur safna
saman og miðla reynslu og kynna það sem efst er á baugi
í kennslufræðum, kenningum, námsleiðum, nýjum bókum,
gögnum, tækjum og vefsíðum.
Í þessu fyrsta tölublaði er kynning á Fræðslumiðstöðinni
en rauði þráðurinn í umfjölluninni er kynning á hugmynd-
um um raunfærnimat, verkefni sem við teljum að verði
umfangsmikið í starfsemi FA á næstunni. Með því opnast
möguleiki fyrir þann stóra hluta vinnandi fólks, sem býr
yfir starfsreynslu, félagslegri færni og þekkingu en ekki
formlegri menntun, til þess að fá raunfærni sína metna og
skjalfesta. Með því að hlú þannig að einstaklingum fá
þeir tækifæri til þess að takast á við ný verkefni í vinnu og
námi. Atvinnulífið hagnast og verður hæfara í samkeppn-
inni. Samfélagið nýtur góðs af hvoru tveggja, hagsæld
eykst og ánægja allra.
Um nokkurt skeið hefur vantað íslenskt rit af þessu tagi,
rit með fjölþættri nálgun um fræðslumál fullorðinna sem
ætlað er að ná til víðs hóps í samfélaginu, bæði þeirra
sem sinna fræðslumálum og hinna sem eru þátttakendur
og hafa áhuga á að kynna sér það sem er í deiglunni
hverju sinni. Í þessu tölublaði ritsins er alhliða umfjöllun
um fullorðinsfræðslu á Íslandi í dag með fræðilegum
greinum, skilgreiningum, reynslusögum og lýsingum á
ýmsum möguleikum sem standa þeim sem óska eftir
fræðslu til boða. Nálgun viðfangsefna er út frá sjónarhóli
þeirra sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins á að þjóna, það
er einstaklinganna, atvinnulífsins og samfélagsins.
Við stefnum að því að Gátt verði kærkomin lesning öllum
þeim sem að fullorðinsfræðslu koma og hvetjum lesendur
til að hafa samband, koma með ábendingar og hugmyndir
og taka þátt í því með okkur að efla fullorðinsfræðslu og
starfsmenntun í atvinnulífinu.
Það er von okkar að þetta fyrsta tölublað veki jákvæðar
væntingar um framhaldið og örvi umræður um kennslu-
fræði og símenntun í samfélaginu.
Ritstjórn
R I T S T J Ó R N A R P I S T I L L
Ritstjórn Gáttar: Sigrún Kristín Magnúsdóttir, Sigrún Jóhannesdóttir,
Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir.