Gátt - 2004, Blaðsíða 50
50
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
Ummæli e instakl inga:
- Nauðsynlegt og skipulagt fyrir þá sem eru að leita sér
að vinnu.
- Ég hef ákveðið að fara í nám til að afla mér þekkingar sem
nauðsynleg er fyrir það starf sem ég hef áhuga á að vinna.
- Ég hef styrkst mjög mikið og er betur undirbúin fyrir nám og
atvinnuleit.
- Ferilskráin mín er full af sjálfsvirðingu, ólík þeim fyrri.
- Kom mér á óvart en er frábært verkefni.
Gunnlaug Hartmannsdóttir,
náms- og starfsráðgjafi hjá Mími - símenntun.
„Verkamenn hjá
Símanum“
Nú í ár hefur Fræðslumiðstöð atvinnu-
lífsins komið að tilraunaverkefnum í
tengslum við starfsþjálfun og endur-
menntun. Innlegg Fræðslumiðstöðvar
hefur falist í því að greina tækifæri til
mats á raunfærni og vera ráðgefandi
í því ferli. Eitt þessara verkefna er
samstarfsverkefni Símans, Eflingar –
stéttarfélags, Iðnskólans í Reykjavík,
Starfsafls – starfsmenntar Samtaka
atvinnulífsins og Flóabandalagsins
og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Markmið verkefnis-
ins er að allir verkamenn hjá Símanum eigi kost á starfs-
þjálfunarnámskeiðum sem miða að því að gera þá hæfari
í starfi og um leið byggja brýr fyrir þá sem áhuga hafa á
því að fá færni sína metna til styttingar á námi í símsmíði.
Könnun á meðal starfsmanna leiddi í ljós að um tuttugu
manns höfðu áhuga á að fá mat á færni sinni.
Í upphafi var haldinn kynningarfundur með hópnum. Í
kjölfarið hófst færniskráning. Náms- og starfsráðgjafi,
kennari og fræðslustjóri Símans aðstoðuðu einstakling-
ana við að lýsa þeirri heildarfærni sem þeir hafa þróað
með sér með námi og starfi. Þá tóku við einstaklingsviðtöl
hjá náms- og starfsráðgjafa þar sem farið var yfir
skráningu og rætt um námið.
Út frá niðurstöðum færniskráningar er nú verið að vinna
yfirlit yfir þá þætti sem mögulegt er að meta hjá hverjum
einstaklingi fyrir sig til styttingar á námi í símsmíði.
Síminn mun sjá um að meta inn í þá áfanga, sem hann
hefur umsjón með, í náminu í samvinnu við Fræðslu-
miðstöð atvinnulífsins sem leggur til leiðbeiningar
varðandi tilhögun matsins. Iðnskólinn í Reykjavík mun
koma til móts við tilvonandi nemendur á sama máta.
Einstaklingar innan hópsins eru mislangt á veg komnir í
færniuppbyggingu sinni og námi í faginu. Sumir hafa
tekið þó nokkra áfanga í framhaldsskólakerfinu, aðrir búa
að langri starfsreynslu og margir hafa hvort tveggja í
farteskinu.
Mikilvægt er að kynna matsferlið og hugtök tengd raun-
færni vel fyrir einstaklingum til þess að þeir geti tekið
upplýsta ákvörðum um hvort þessi leið henti þeim. Við
kortlagningu á færni getur komið sér vel að vinna í hópum
þar sem oft er verið að lýsa sameiginlegri færni og því
gott að geta sameinast við að rifja upp verkþætti og orða
lýsingarnar.
M A T Á F Æ R N I T I L S T Y T T I N G A R Á N Á M I
Fjóla María Lárusdóttir