Gátt - 2004, Blaðsíða 35
35
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
einnig að greiða fyrir það. Þetta hefur í för með sér að ef
vinnumiðlunin óskar eftir mati fyrir ákveðinn fjölda fólks
er það einnig vinnumiðlunin sem á að greiða fyrir matið.
Á þann hátt getur Raunfærnimiðstöðin einnig fjölgað
þeim sem meta þegar ósk eftir slíku mati berst.
Stýr ihópur
Í sveitarfélaginu er mikill áhugi á öllu sem viðkemur færni-
matinu og það hefur leitt til þess að myndaður var
stýrihópur fyrir færnimat í september 2003 með fulltrúum
LO (launþegasamtakanna), SACO (Bandalags háskóla-
manna), TCO (Bandalags starfsmanna ríkis og bæja),
Företagarna (Samtaka atvinnulífsins), Vinnumálaskrif-
stofu, Malmö stad (fullorðinsfræðslu og skrifstofu nýbúa-
og atvinnumála Málmeyjar) auk Malmö högskola
(Háskólans í Málmey). Formennsku gegnir deildarstjóri
borgarinnar fyrir málefni nýbúa, atvinnu og fullorðins-
fræðslu.
Þar sem samstarf við raunfærnimat snertir marga hefur
verið gerður samstarfssamningur við aðila samkvæmt
samsetningu stýrihópsins.
Vinnuhópar
Fyrir hverja starfsgrein, sem á að meta, eru skipaðir vinnu-
hópar sem í eru fulltrúar fag- og vinnuveitendafélaga,
fullorðinsfræðsluaðila, vinnumiðlunar, fagkennara og
verkefnastjóra frá Raunfærnimiðstöðinni. Hver vinnuhópur
á að fylgja eftir skipulagi matsins. Fulltrúarnir hafa mögu-
leika á að taka þátt í mótun og koma sjónarmiðum um
matsverkfærin á framfæri. Verkfærin hafa verið þróuð af
fagkennara í samstarfi við verkefnastjóra Raunfærni-
miðstöðvar og innihalda verkefnin sem gera á grein fyrir
og lýsingu á hvernig á að vinna til að gæði séu tryggð.
Fjármögnun
Fram til þessa hefur starfsemin við raunfærnimatið verið
fjármögnuð af framlögum frá mismunandi aðilum eins og
fullorðinsfræðslunni, vinnumála-
skrifstofu, atvinnumálanefnd,
skólaskrifstofu auk styrkja frá
flóttamannasjóði ESB. Nýlega
hefur Raunfærnimiðstöðin feng-
ið styrk til tveggja ára til þess
að vinna verkefni sem snýr að
atvinnulausu fólki af erlendum
uppruna á Skáni og nýbúum sem
hafa nýlega flutt til Málmeyjar.
Ski lgreining
Allir eru sammála um að verkefnið feli í sér að sýna fram
á og tryggja færni en hvernig og í hvaða samhengi matið
fer fram eru menn ekki á einu máli um enn þá.
Að okkar áliti á matið einnig að:
- Fara fram sem afmarkað ferli, aðskilið því sem kemur á
eftir eins og t.d. meiri menntun
- Fela í sér aðferðir sem hæfa markhópnum
- Bjóða upp á virka þátttöku einstaklinganna
- Vera rannsakandi og hafa raunfærni einstaklingsins að
markmiði
- Vera lýst með löggildri skráningu/skjalfestingu
Markhópur/Nýl iðun
Allir, sem hafa þörf á að láta meta færni sína til þess að
geta fengið betri vinnu eða haldið áfram námi, hafa tæki-
færi til þess að fá starfsfærni sína metna af Raunfærni-
miðstöð. Í markhópnum eru bæði Svíar og nýbúar í vinnu
jafnt og atvinnulausir.
Nýkomnir nýbúar
Vegna þess að Málmey er nýbúaborg hefur starfsemi
Raunfærnimiðstöðvar einnig beinst að því að finna leiðir
til þess að meta nýbúa sem eru nýaðfluttir eins fljótt og
hægt er.
Ronny Nilsson og Ingela Bergman