Gátt - 2004, Blaðsíða 10
10
Mat á raunfærni
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins skal aðstoða mennta-
málaráðuneytið við að þróa aðferðir við mat á námi og
námsárangri, þ.m.t. mat og vottun á óformlegu námi og
starfsþjálfun í samstarfi við atvinnulífið og fræðsluaðila.
Einnig skal FA taka þátt í að þróa aðferðir við uppbygg-
ingu námsferilsskrár fyrir einstaklinga í markhópnum.
Menntamálaráðuneytið setti á fót nefnd til ráðgjafar um
þessi mál. Nefndin vinnur jafnframt að því að móta mats-
reglur til viðmiðunar við mat. Í nefndinni eru Ólafur Grétar
Kristjánsson, Þórir Ólafsson, Sölvi Sveinsson og
Ingibjörg E. Guðmundsdóttir. Til að aðstoð Fræðslumið-
stöðvarinnar við að þróa aðferðir við vottun á óformlegu
námi og starfsþjálfun sé gagnleg er nauðsynlegt að afla
upplýsinga frá löndunum í kringum okkur sem eru lengra
komin í ferlinu og jafnframt að taka þátt í nokkrum
tilraunaverkefnum.
- Í september staðfesti menntamálaráðuneytið að meta
mætti til styttingar á námi í framhaldsskóla, með þeim
hætti sem matsnefndin gerði tillögu um, nokkur náms-
tilboð frá Mími-símenntun. Ráðuneytið ritaði framhalds-
skólunum bréf um málið en mat á námi á framhalds-
skólastigi er í höndum skólameistara og er það ávallt
einstaklingsbundið. Þau námstilboð sem fengu mat eru:
Grunnmenntaskólinn, metinn til allt að 24 eininga.
Landnemaskólinn til allt að 10 eininga, Jarðlagnatækni
til allt að 24 eininga, MFA-skólinn til allt að 27 eininga
og „Aftur í nám“ til allt að 7 eininga.
- Unnið er að námsskrá fyrir umfangsmikið verslunar-
fagnám sem lagt hefur verið inn til mats. Niðurstaðna
er að vænta fljótlega.
- Í ársbyrjun 2004 kom Torild Nilsen Mohn frá VOX í
Noregi í heimsókn til FA. VOX er sá aðili í Noregi sem
hefur haldið utan um raunfærniverkefnið þar í landi, en
Norðmenn hafa stigið ákveðnari skref í þessari þróun
en flestir aðrir. Torild vann með starfsmönnum FA og
hélt einnig fyrirlestur fyrir fleiri aðila. Í maí fór Ingibjörg
E. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri FA, til Bordeaux
í Frakklandi á ráðstefnu Leonardo da Vinci áætlunar-
innar um „Transparency, assessment and validation of
knowledge“. Í maí fóru Ingibjörg E. Guðmundsdóttir og
Fjóla María Lárusdóttir, náms- og starfsráðgjafi FA, í
kynnisferð með starfsmenntaráði félagsmálaráðu-
neytisins til Skotlands. Áherslan í ferðinni var mat á
raunfærni, skoska kerfið var kynnt og starfsemi ýmissa
aðila sem koma að matinu eða vinna skyld verkefni. Í
júní fór Guðmunda Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá FA, í
Cedefop-námsferð til Englands. Námsferðin bar nafnið
„Recognition of formal, non-formal and informal learn-
ing“. Í september fór Fjóla María Lárusdóttir í manna-
skiptaferð á vegum Leonardo til Svíþjóðar og Danmerkur
og heimsótti aðila sem hafa verið að vinna að mati á
raunfærni í þessum löndum.
- Tilraunaverkefni er unnið í samstarfi við Símann,
Eflingu-stéttarfélag, Iðnskólann í Reykjavík og Starfsafl
um mat á starfi verkamanna hjá Símanum inn í sím-
smiðanám í Iðnskólanum.
- Í byrjun október var lögð inn forumsókn um tilrauna-
verkefni til Leonardo-skrifstofunnar á Íslandi þar sem
markmiðið er að lýsa aðferðum og framleiða tæki til
raunfærnimats ásamt því að byggja upp ráðgjöf og
aðkomu fyrirtækja að raunfærniskráningu. Verkefnið
verður unnið í samstarfi við aðila m.a. í Danmörku og
Svíþjóð. Íslensku aðilarnir eru, ásamt FA, Starfs-
greinaráð í fjármála- og verslunargreinum, SÍB,
Landsbankinn og Íslandsbanki. Áformað er að leita
eftir samstarfi við fleiri aðila, verði forumsóknin
samþykkt.
Markmið með uppbyggingu námsferilsskráa er að finna
auðvelda leið til að halda utan um námsferil einstaklinga
í formlegu og óformlegu námi ásamt því að halda jafn-
framt utan um raunfærnimat einstaklinga, jafngildingu
mats miðað við formlegt nám, staðfesta færni á vinnu-
markaði og hugsanlega einnig aðra færni sem ekki hefur
verið metin né staðfest. Þetta verkefni er skammt á veg
komið en þó hafa tvö skref verið stigin í þessu máli.
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S