Gátt - 2004, Blaðsíða 98
98
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
Í þessu fyrsta ársriti er framsetning og frágangur greina
með ýmsu móti og er það með ráðum gert. Framvegis
munum við þó stefna að því að hafa staðlaðan frágang
sem við biðjum efnishöfunda að kynna sér vel á þessari
síðu.
Efnisval
Ritnefnd ákveður sjónarhorn og áherslur hvers ársrits,
hefur samband við höfunda efnis og tekur afstöðu til þess
hvort grein verður birt í ritinu.
Efni sem á er indi í Gátt
Gátt er ársrit sem ætlað er að vera vettvangur fyrir efni
um fræðslumál fullorðinna með sérstakri áherslu á
hverskonar starfsfræðslu. Í ritinu verða bæði ritrýndar
greinar og almennar og þar fer fram kynning á
rannsóknum og lausnum í fullorðinsfræðslu og símennt-
un, jafnt hagnýtum sem fræðilegum. Ritið birtir greinar,
viðtöl og frásagnir af nýjungum, farsælum verkefnum,
framtíðarhugmyndum og breytingum á sviði símenntunar
og starfsfræðslu ásamt reynslusögum af verkefnum á
Íslandi, bæði úr fyrirtækjum og fræðslustofnunum.
Lesendahópur
Lesendur eru breiður hópur þeirra sem koma að full-
orðinsfræðslumálum á Íslandi, stjórnendur, leiðbeinend-
ur, námsráðgjafar, kostendur fræðslu, kaupendur fræðslu,
nemendur og þátttakendur. Textinn þarf að höfða til
þessa breiða hóps, vera skýr og aðgengilegur og hafa
augljósa tilvísun í eða tengsl við það hagnýta hlutverk
sem Fræðslumiðstöðin gegnir.
Fræðigreinar og annað efni
Áskilið er að þær fræðigreinar sem birtar verða hafi ekki
birst í öðru íslensku riti. Almennt er miðað við að
fræðigreinar og annað efni sem birtist í ritinu sé á bilinu
1000-4000 orð að lengd og með þarf að fylgja stuttur
útdráttur (200 orð) sem hafður er fremst. Ætlast er til að
höfundar breyti efni og lagfæri það í samræmi við
ábendingar ritnefndar. Verulegar lagfæringar í próförk
eru bornar undir höfund.
Efni í ritið á að senda með tölvupósti á netfangið
gatt@frae.is
Myndskreyt ingar
Höfundar efnis eru beðnir að hafa samráð við ritsjórn um
skil á myndefni sem fylgir greinum þeirra.
Heimildir
Um tilvísanir og heimildaskrá vegna greina í ársritinu
vísast til hins svokallaða APA-tilvísanakerfis bandaríska
sálfræðingafélagsins. Handhægar upplýsingar um það er
einnig að finna í ritinu Gagnfræðakver handa háskóla-
nemum eftir Friðrik H. Jónsson og Sigurð J. Grétarsson.
Dæmi um heimildaskráningu:
American Psychological Association. (2001). Publication
Manual of the American Psychological Association (5.
útgáfa). Washington: APA.
Friðrik H. Jónsson og Sigurður J. Grétarsson. (2002).
Gagnfræðakver handa háskólanemum (3. útgáfa).
Reykjavík: Háskólaútgáfan.
Upplýsingar sem þurfa að koma fram
Með öllu efni sem sent er í ritið fylgi sérstök titilsíða, á
henni þurfa að vera eftirfarandi upplýsingar:
- Titill greinar, viðtals eða frásagnar sem gefi sem
ljósasta mynd af efnisinnihaldi.
- Nafn og núverandi staða höfundar
- Síma- og faxnúmer, netfang
T I L G R E I N A H Ö F U N D A