Gátt


Gátt - 2004, Side 85

Gátt - 2004, Side 85
85 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S verkþáttum starfa aukið gildi með því að gera þá gagn- sæja í gegnum matsferlið. Það er hverjum einstaklingi mikilvægt að vera meðvit- aður um eigin færni og styrkleika. Að geta lýst þeim og sýnt fram á staðfestingu á þeim ætti að vera eðlilegur hluti af þátttöku í atvinnulífinu. Það krefst þó þjálfunar eins og svo margt annað. Eitt af hlutverkum náms- og starfsráðgjafa í þessu ferli er að leiðbeina fólki við að skrá raunfærni sína og að lýsa þeim verkefnum og verkþáttum sem það hefur sinnt í gegnum störf og einkalíf. Þannig má draga fram styrkleika sem vænlegt er að byggja á og fá viðurkennda. Framhald Ráðgjafar eru nú í þann mund að meta og greina skipulag og ferli verkefnisins „Námsráðgjöf á vinnustað“ í því skyni að nýta það sem hefur gengið vel og þróa nýjar leiðir þar sem það á við. Töluverð þekking og reynsla hefur áunnist í gegnum verkefnið. Það sem hefur áunnist á síðastliðnu ári birtist aðallega í því að starfsmenn hafa að eigin frumkvæði samband við náms- og starfsráð- gjafana í auknum mæli til þess að fá upplýsingar og leiðbeiningar um námstengd málefni. Einnig hefur hluti hópsins nýtt sér þessa þjónustu enn frekar og komið í fleiri en eitt viðtal. Fyrir þá hefur ráðgjöfin verið í boði á réttum stað á réttum tíma þar sem þeir hafa verið reiðubúnir til að leggja vinnu í að láta námstengda drauma sína rætast. Fyrir aðra er það nóg í bili að vita af þessari þjónustu, út á hvað hún gengur og hvar hana er að finna. Ef koma á til móts við þarfir fólks á vinnumarkaði með skamma skólagöngu, er brýnt að vera í beinum tengslum við það. Fræðslumiðstöðin leggur áherslu á að byggja upp námstilboð og ráðgjöf útfrá þeim þörfum sem greinast í vinnu með einstaklingum og hópum. Það eykur líkurnar á þróun hentugra námstilboða sem skila árangri fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki. Framtíðarverkefni Framundan er þróun ráðgjafar í tengslum við mat á raun- færni. Lögð verður áhersla á að þróa árangursríkar aðferðir í því skyni að gera ferlið skýrt og skiljanlegt fyrir einstaklinginn, sem og að veita honum stuðning í því. Á lesblindunámskeið og nú í Grunnmenntaskólann Olga Jakobsdóttir vann á Elli- og hjúkrunarheimil- inu Grund þegar hún fór í námsráðgjöf hjá Mími- símenntun. Hún segir að aðdragandinn hafi verið á þá leið að námsráðgjafi, sem hélt fund með Eflingarfélögum, á vinnustaðnum hafi ráðlagt sér að sækja námskeið vegna lesblindu. Þegar því lauk hafði hún aftur samband við ráðgjafann og vegna hvatn- ingar hennar ætlar hún í Grunnmenntaskólan í haust. Ef námið gengur vel í vetur hefur hún áhuga á að fara í nám í grafískri hönnun í Iðnskólanum næsta haust. Þetta framtak hjá Eflingu og Mími-símenntun, að senda náms- ráðgjafa á vinnustaði og kynna fjölþætta möguleika til náms, er frábært og ég vona að sem flestir nýti sér ráðgjöfina, sagði Olga og brosti. Úr Fréttablaði Eflingar - stéttarfélags, september 2004, birt með góðfúslegu leyfi. Olga Jakobsdóttir Úr Össuri í rafeindafræði - þakklátur Eflingu fyrir námsráðgjöf Sveinn Svavarsson vinnur í koltrefjadeild hjá Össuri og fór í námsráðgjöf hjá Mími- símenntun á vegum Eflingar. Hann segir að námsráðgjafi hafi komið á fund með Eflingarfélögum, sem vinna hjá fyrirtæk- inu, og kynnt þeim ýmsar leiðir til náms. - Áhugi ráðgjafans hafði mikil áhrif á mig. Í framhaldi af því ákvað ég að skrá mig í kvöldskóla í Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti í vetur og undirbúa mig fyrir nám í rafeind- arfræði næsta haust. Mig hefur lengi dreymt um að fara í slíkt nám og núna finnst mér ég vera tilbúinn til þess að láta þann draum rætast. Námsráðgjöfin kom sér mjög vel og ég er þakklát- ur Eflingu og námsráðgjafanum mínum fyrir stuðninginn og hvatninguna, sagði Sveinn að lokum. Sveinn Svavarsson

x

Gátt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.