Gátt


Gátt - 2004, Blaðsíða 76

Gátt - 2004, Blaðsíða 76
76 F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S Verkefnið er nú vel á veg komið og mun fyrsti hópurinn, þátttakendur í tilraunaverkefninu, hefja eins og hálfs árs nám við Verzlunarskóla Íslands í janúar 2005. Námið er bland- að starfsnám, þ.e. fer fram jafnhliða í skóla og á vinnustað og er alls 676 klukkustundir að lengd. Að tilrauna- náminu loknu mun FA meta árang- urinn, endurskoða og endurbæta og gefa námsskrá út að nýju. Verslunarfagnámið er hannað sérstak- lega fyrir starfandi verslunarfólk og er ætlað að auka verslunarfærni og efla almenna og persónu- lega færni starfsfólks til að takast á við fjölbreytt og krefj- andi verkefni í nútímaverslun. Útskrifaðir starfsmenn eiga að hafa faglegar forsendur til að taka að sér aukna ábyrgð og verkefnisstjórnun á ýmsum sviðum verslunar. Forsendur Við smásöluverslun á Íslandi starfa um 12.000 manns og líklegt má telja að stór hluti þess hóps tilheyri markhópi FA. Fram að þessu hafa fræðslumál verslunarfólks að mestu verið leyst með námskeiðum innan hvers fyrirtækis og mun þetta verða í fyrsta sinn sem boðið verður upp á heilsteypt starfstengt fagnám fyrir verslun- arfólk, eins og segir í frétt á vef SVÞ. Á sama vef segir einnig: Hér er tvímælalaust um að ræða stærsta átak sem gert hefur verið í fagmenntun verslunarfólks. Á undanförnum árum hafa verslanir sjálfar þurft að leysa úr menntunarþörf stéttarinnar með því að stofna eigin skóla eða fræðslusetur innan fyrirtækjanna. Frumkvæðið að námsbraut fyrir verslunarfólk áttu SVÞ og fræðslustjórar innan verslanafyrirtækjanna en verkefnið hefur verið undirbúið í samstarfi við VR. Verkefnis- stjórnun hefur fram að þessu verið í höndum Fræðslumið- stöðvar atvinnulífsins sem hefur séð um viðamikla þarfa- greiningu, námskrárgerð og faglega ráðgjöf. (www.svth.is - fréttapóstur 11. tbl. 29. júní 2004). Frá upphafi verkefnisins var ljóst að allir hagsmunaaðilar voru mjög áhugasamir og ákveðnir í að standa vel að verki. Lagt var af stað með það að leiðarljósi að niðurstaðan yrði metnaðarfullt námstilboð þar sem þarfir starfsgreinarinnar og einstaklinganna yrðu útgangs- punkturinn. Hér var því kjörið tækifæri til að breyta um aðferðir og nálgun og þróa leiðir sem henta fullorðnum námsmönnum í atvinnulífinu. Markmiðið með þessu nýja námsframboði skyldi verða: - Að almennt starfsfólk í verslunum eigi þess kost að afla sér menntunar sem styrkir það í starfi. - Að auka metnað og virðingu hjá verslunarfólki fyrir þeim störfum sem það gegnir. - Að fyrirtækin geti boðið upp á góða þjónustu með sérhæfðu starfsfólki. Þátttaka í verslunarfagnáminu er endurmenntun þar sem hluti vinnutímans er notaður til að læra og efla faglega sýn. Í námsskrá og í umfjöllun FA um námið er því ávallt talað um starfsmann þegar átt er við þátttakanda í náminu. Þarfagreining Vinna við greiningu fræðsluþarfa var ítarleg og umfangs- mikil. M.a. var stuðst við nýlegar úttektir IMG Gallup sem unnar voru fyrir starfsgreinaráð og starfsmenntasjóði greinarinnar1 auk þess sem leitað var til vinnuveitenda, starfsfólks, fræðslustjóra og annarra sérfræðinga á sviði verslunar. Farið var í námsheimsókn til Danmerkur og Finnlands og upplýsingar sóttar til fjölda annarra landa með hjálp Internetsins. Þá var tekið mið af spám um þróun starfa og hvaða hæfniskröfur verða almennt gerðar til starfsfólks framtíðarinnar. Einnig var farið yfir það sem gert hefur verið í menntunarmálum verslunar- fólks fram að þessu. Niðurstaða þarfagreiningarinnar var tvíþætt, annars vegar efnisleg um innihald námsins og hins vegar um skipulag og framkvæmd. Vinna við þarfa- Guðmunda Kristinsdóttir 1 Viðhorfsrannsókn, Þörf fyrir menntun, Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks, apríl 2003, IMG Gallup. Rýnihópar, Þörf fyrir menntun, Starfsmenntasjóður verslunarinnar, maí 2003, IMG Gallup. Rýnihópar og djúpviðtöl, Þörf fyrir menntun, Starfsgreinaráð fjármála-, skrifstofu- og verslunargreina, júní 2003, IMG Gallup. Rýnihópur, Staða menntunar, Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks, nóvember 2003, IMG Gallup.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Gátt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gátt
https://timarit.is/publication/1852

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.